Hoppa yfir valmynd
7. júní 2012 Utanríkisráðuneytið

Íslendingar geta búist við 3 olíusvæðum norðan Íslands

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra
Össur Skarphéðinsson

 
Íslendingar geta búist við því að upp úr 2025 verði þrjú olíusvæði norðan Íslands; á Drekasvæðinu, útaf Austur-Grænlandi, og við Jan Mayen. Íslensk stjórnvöld stefna að því að byggja upp þjónustu á Norðurlandi við öll olíusvæðin þrjú, og hafa átt viðræður við Grænland og Noreg um íslenskar þjónustumiðstöðvar við olíuvinnsluna.
 
Þetta kom fram í ræðu Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, á fundi Arion banka í morgun um Drekasvæðið og hugsanlega olíuvinnslu Íslendinga.
 
Utanríkisráðherra var bjartsýnn á olíufundi á Drekasvæðinu og kvað rannsóknir síðasta árs hafa leitt fram órækar sannanir fyrir að olíu væri að finna á svæðinu. Hann kvað farsælast fyrir Íslendinga að setja í framtíðinni upp sérstakan Auðlindasjóð til að fara með nýtingargjöld sem renna til ríkisins vegna auðlinda í eigu þess, og kvað það sérstaklega nauðsynlegt til að tryggja að hugsanlegur afrakstur af olíuvinnslu á næsta áratug leiði ekki til ójafnvægis og ofhitnunar í íslenska hagkerfinu.
 
Varðandi uppbyggingu þjónustu á Íslandi fyrir olíusvæðin þrjú upplýsti utanríkisráðherra að hann hefði þegar átt formlegar viðræður við Kuupik Kleist, forsætisráðherra Grænlendinga. Þeir hafi orðið sammála um að löndin tvö vinni saman að því að þróa þjónustu og innvirði fyrir orkuþríhyrninginn Ísland, Grænland og Jan Mayen svæðið. Sömuleiðis hefði málið verið tekið nýlega upp í samræðum milli hans og Jonasar Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, og þeir orðið sammála um að taka málið upp í formlegar viðræður í opinberri heimsókn utanríkisráðherra til Noregs síðar á árinu.
 
Utanríkisráðherra lagði mikla áherslu á að farið yrði í olíuvinnslu norðan Íslands af ítrustu varkárni. Olíuvinnslu þar ætti aðeins að leyfa á grundvelli ströngustu umhverfisreglna, og ekki fyrr en nauðsynlegur öryggisbúnaður vegna mengunaróhappa væri kominn upp.

Ræða utanríkisráðherra

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum