Hoppa yfir valmynd
11. júlí 2012 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 11. júlí 2012

Mál nr. 39/2012                    Eiginnafn:     Eldmar

 

Hinn 11. júlí 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 39/2012 en erindið barst nefndinni 2. júlí.

Eiginnafnið Eldmar (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Eldmars, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Eldmar (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

Mál nr. 41/2012                    Eiginnafn:     Ebonney

 

Hinn 11. júlí 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 41/2012 en erindið barst nefndinni 5. júlí:

Eiginnafnið Ebonney (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ebonneyjar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ebonney (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

Mál nr. 42/2012                    Eiginnafn:     Einbjörg

 

Hinn 11. júlí 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 42/2012 en erindið barst nefndinni sama dag:

Eiginnafnið Einbjörg (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Einbjargar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Einbjörg (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum