Hoppa yfir valmynd
11. ágúst 2012 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr.49/2012B, úrskurður 11. ágúst 2012

Mál nr. 49/2012B                 Eiginnafn: Pedró

 

Hinn 11. ágúst 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 49/2012B en erindið barst nefndinni 7. ágúst. Með vísan til 1. mgr. 34. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 telst mannanafnanefnd ályktunarhæf, þrátt fyrir að einn nefndarmanna af þremur hafi ekki getað mætt til fundarins.

Í fyrri úrskurði nefndarinnar, dags. 8. ágúst 2012, í máli 49/2012 var hafnað beiðni um eiginnafnið Pedro (kk.). Til vara hafa umsækjendur um það nafn einnig sótt um eiginnafnið Pedró (kk.). Eiginnafnið Pedró fullnægir öllum skilyrðum 5. gr. laga um mannanöfn nr. 45/1996 og ber því að færa það á mannanafnaskrá.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Pedró (kk.) samþykkt og skal fært á mannanafnaskrá.

 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum