Hoppa yfir valmynd
2. nóvember 2012 Matvælaráðuneytið

Dodda ehf., kærir ákvörðun Fiskistofu  um úthlutun byggðakvóta fyrir Kópasker fiskveiðárið 2011/2012

Stjórnsýslukæra

    Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru Þórðar H. Sveinssonar, hdl. f.h. Doddu ehf., Lyngholti 7, 640 Húsavík, sem barst ráðuneytinu með tölvubréfi frá 19. júlí 2012, en frekari rökstuðningur fyrir stjórnsýslukærunni barst ráðuneytinu með bréfi lögmanns kæranda, dags. 9. ágúst 2012, sem barst ráðuneytinu 13. sama mánaðar.
    Kæruheimild er í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.


Kröfur kæranda

    Kærandi gerir svohljóðandi kröfur í rökstuðningi með stjórnsýslukærunni: "I. Að felld verði úr gildi úthlutun Fiskistofu um byggðakvóta fyrir Kópasker fiskveiðiárið 2011/2012 og lagt fyrir Fiskistofu að úthluta til Karólínu ÞH-100 (2760) byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/12 í samræmi við löndunar- og vinnsluskyldu skipsins og heimildir, í hlutfalli við önnur skip sem eiga rétt til byggðakvóta fyrir Kópasker. II. Að felld verði úr gildi endurúthlutun sem Helga Sæm ÞH-76 (6945) fékk á fiskveiðiárinu 2010/11 á grundvelli löndunar á grásleppuhrognum og endurúthlutunin fengin skipi kæranda, Karólínu ÞH-100 (2760) og öðrum skipum sem fengu byggðakvóta það árið í hlutfalli við heimildir þeirra til byggðakvóta eða að ofangreind endurúthlutun til Helgu Sæm ÞH-76 á byggðakvóta fiskveiðiársins 2010/11 verði endurúthlutuð á ný til skips kæranda Karólínu ÞH-76 og annarra skipa sem rétt höfðu til byggðakvóta í samræmi við heimildir þeirra á fiskveiðiárinu 2010/11."


Málsatvik

    Málsatvik eru þau að með auglýsingu, dags. 28. júní 2012, sem birt var í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu 29. sama mánaðar, og einnig á vefsíðu Fiskistofu, auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 í nokkrum sveitarfélögum og byggðarlögum, m.a. á Kópaskeri í Norðurþingi, en auglýsingin var byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, sbr. og 5. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012. Einnig var framangreind auglýsing birt á vefsíðu Fiskistofu og tölvupóstur með auglýsingunni sendur til viðkomandi sveitarfélaga þar sem þau voru beðin um að setja frétt um auglýsinguna inn á sínar heimasíður. Umsóknarfrestur var til og með 11. júlí 2012. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hafði þá úthlutað 357 þorskígildistonnum af byggðakvóta til sveitarfélagsins Norðurþings á grundvelli reglugerðar nr. 1181/2011, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2011/2012 sem skiptust á byggðarlögin Húsavík, 197 þorskígildistonn, Kópasker, 66 þorskígildistonn og Raufarhöfn, 94 þorskígildistonn. Úthlutunin var tilkynnt sveitarfélaginu Norðurþingi með bréfi, dags. 22. desember 2011.
    Kærandi sótti um byggðakvóta fyrir bátinn Karólínu ÞH-100 (2760) með umsókn til Fiskistofu, dags. 9. júlí 2012.
    Hinn 12. júlí 2012 tilkynnti Fiskistofa útgerðum á Kópaskeri í Norðurþingi ákvarðanir sínar um úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa eða höfnun umsókna um úthlutun. Umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta til bátsins Karólínu ÞH-100 (2760) var hafnað með vísan til c-liðar 1. gr. reglugerðar nr. 1182/2011. Í ákvörðun Fiskistofu segir m.a.: "Samkvæmt stafl. c. 1. gr. ofangreindrar reglugerðar er skilyrði fyrir úthlutun til skips að það hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi þann 1. desember 2011. Skráður eigandi og útgerðaraðili ofangreinds skips hjá Fiskistofu var, samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra, með lögheimili á Húsavík á þeim tíma, og því kemur ekki til úthlutunar byggðakvóta til skipsins."
    Þá kom fram í ákvörðun Fiskistofu að hún væri kæranleg til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindri tilkynningu Fiskistofu um höfnun umsóknar um úthlutun.


Málsrök með stjórnsýslukæru o.fl.

    Með stjórnsýslukæru, dags. 19. júlí 2012, sem barst ráðuneytinu með tölvubréfi sama dag, kærði Þórður H. Sveinsson, hdl. f.h. Doddu ehf. framangreinda ákvörðun Fiskistofu til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Í kærunni var óskað eftir fresti vegna fjarveru lögmannsins til að skila rökstuðningi fyrir kærunni og var það samþykkt af ráðuneytinu með tölvubréfi sama dag. Frekari rökstuðningur fyrir stjórnsýslukærunni barst ráðuneytinu með bréfi Þórðar H. Sveinssonar, hdl. f.h. Doddu ehf., dags. 9. ágúst 2012, sem barst ráðuneytinu 13. sama mánaðar.
    Í rökstuðningi fyrir stjórnsýslukærunni segir m.a. að með bréfi, dags. 19. janúar 2012, hafi sveitarfélagið Norðurþing óskað eftir því við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið að sett yrðu sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í sveitarfélaginu og byggðarlögum þess, þ.e. Húsavík, Kópaskeri og Raufarhöfn. Óskað hafi verið eftir m.a. að gerðar yrðu breytingar á c-lið 1. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012, á þann veg að orðinu "byggðarlag" yrði breytt í "sveitarfélag" en beiðninni hafi fylgt tiltekinn rökstuðningur. Með bréfi ráðuneytisins, dags. 15. maí 2012, hafi beiðni sveitarfélagsins Norðurþings verið hafnað. Niðurstaða ráðuneytisins hafi verið sú að ekki væru málefnalegar og staðbundnar ástæður fyrir því að breyta c-lið 1. gr. reglugerðarinnar á þann veg sem óskað væri eftir. Um það vísaði ráðuneytið til þess m.a. að við athugun hafi komið í ljós að skip sem séu skráð með heimahöfn á Kópaskeri og eigendur þeirra með lögheimili í því byggðarlagi, séu líkleg til þess að geta uppfyllt skilyrði um löndun og vinnslu samkvæmt reglugerð nr. 1182/2011. Þar sem löndun og vinnsla á grásleppu og grásleppuhrognum teljist nú vera landaður afli til að uppfylla löndunar- og vinnsluskyldu, hafi ráðuneytið talið að ekki væru nauðsynlegar þær breytingar á 1. gr. reglugerðarinnar sem óskað hafi verið eftir.
    Einnig kemur fram í rökstuðningi fyrir stjórnsýslukærunni að kærandi telji að framangreind niðurstaða ráðuneytisins hafi ekki verið rétt og byggir það á tilteknum rökstuðningi. Þar kemur fram m.a. að sömu breytingar og óskað hafi verið eftir með bréfi sveitarfélagsins Norðurþings, dags. 19. janúar 2012, hafi verið samþykktar af ráðuneytinu fyrir fiskveiðiárið 2010/2011. Ennfremur kemur fram í rökstuðningi fyrir stjórnsýslukærunni að þar sem sveitarfélagið Norðurþing sé "fjölkjarna" sveitarfélag með þrjá þéttbýliskjarna og stórt dreifbýli sé ekki sjálfgefið að búseta eigenda allra fiskiskipa sé í því byggðarlagi þar sem fiskiskip sé skráð er úthlutun fari fram heldur beri að miða lögheimilisskráningu eigenda við sveitarfélagið en ekki byggðarlagið. Jafnframt sé um einn hafnarsjóð að ræða fyrir sveitarfélagið. Þá fari engin vinnsla fram á Kópaskeri þannig að ekki sé hægt að uppfylla vinnsluskyldu þar eins og farið sé fram á í 6. gr. reglugerðar nr. 1182/2011.
    Umræddum rökstuðningi með stjórnsýslukærunni fylgdu eftirtalin gögn: 1) Bréf Fiskistofu, dags. 12. júlí 2012. 2) Yfirlit um úthlutun byggðakvóta Kópaskers fyrir fiskveiðiárið 2011/2012. 3) Stjórnsýslukæra, dags. 19. júlí 2012. 4) Bréf Norðurþings, dags. 17. janúar 2011. 5) Bréf Norðurþings, dags. 19. janúar 2012. 6) Bréf sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, dags. 15. maí 2012. 7) Bréf Norðurþings, dags. 11. júní 2012. 8) Útskrift úr fasteignaskrá. 9) Tilkynning um endurúthlutun byggðakvóta fyrir bátinn Helgu Sæm ÞH-76 (6945), dags. 6. mars 2012.
    Með bréfi, dags. 15. ágúst 2012, óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu um stjórnsýslukæruna, staðfestu afriti af hinni kærðu ákvörðun auk annarra gagna sem Fiskistofa kynni að hafa um málið. Með bréfi, dags. 28. september 2012, ítrekaði ráðuneytið framangreinda beiðni.
    Í umsögn Fiskistofu um málið, dags. 1. október 2012, segir m.a. að eins og komi fram í hinni kærðu ákvörðun hafi kærandi ekki uppfyllt skilyrði stafliðar c 1. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012, þar sem kærandi hafi ekki verið með lögheimili í byggðarlaginu Kópaskeri heldur Húsavík. Einnig kemur þar fram að endurúthlutun sú sem kærandi krefjist að verði felld úr gildi eða breytt, hafi verið gerð á grundvelli úrskurðar ráðuneytisins, dags. 14. júlí 2011, en ekki verði séð hvernig Fiskistofa geti komið að því máli. Þá verði ekki annað séð en að kærufrestur sé löngu liðinn hvernig sem á málið sé litið.
    Umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins fylgdi staðfest afrit af hinni kærðu ákvörðun, dags. 12. júlí 2012, o.fl.


Rökstuðningur


I.    Með tölvubréfi frá 19. júlí 2012 var stjórnsýslukæra í máli þessu móttekin af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu sem fór með málefni samkvæmt lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Einnig barst ráðuneytinu frekari rökstuðningur fyrir stjórnsýslukærunni með bréfi frá Þórði H. Sveinssyni, hdl. f.h. kæranda, dags. 9. ágúst 2012, sem barst ráðuneytinu 13. sama mánaðar. Með forsetaúrskurði nr. 99/2012, um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti, voru sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og efnahags- og viðskiptaráðuneyti sameinuð í nýtt ráðuneyti, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, og tók úrskurðurinn gildi 1. september 2012. Úrskurður í máli þessu er því kveðinn upp af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem nú fer með málefni samkvæmt lögum nr. 116/2006 og tók við eldri málum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins samkvæmt þeim lögum.

II.    Stjórnsýslukæra í máli þessu er byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum en þar kemur fram að ákvarðanir Fiskistofu um úthlutun aflaheimilda samkvæmt greininni sé heimilt að kæra til ráðuneytisins, þ.e. nú atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Að mati ráðuneytisins verður að skýra ákvæðið með hliðsjón af ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sem einnig gilda um meðferð þessa máls að því leyti sem ekki eru sérstök ákvæði um það í framangreindum lögum nr. 116/2006. Kæruheimild samkvæmt ákvæðinu byggir því að mati ráðuneytisins á því með sama hætti og gert er ráð fyrir í 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, að kærðar séu tilteknar ákvarðanir sem teknar hafa verið um úthlutun aflaheimilda eða höfnun umsókna um slíkar aflaheimildir í byggðarlögum til einstakra fiskiskipa til þess að fá þær felldar úr gildi eða þeim breytt. Í 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir m.a. að lögin gildi þegar stjórnvöld, þar á meðal stjórnsýslunefndir, taki ákvarðanir um rétt eða skyldu manna en einnig kemur þar fram að þau gildi þó ekki um samningu reglugerða né annarra stjórnvaldsfyrirmæla.
    Það er mat ráðuneytisins að málsástæður í stjórnsýslukæru í máli þessu varði að hluta aðeins efni reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012, þ.e. ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. og 2. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1182/2011.
    Ekki er unnt að kæra með stjórnsýslukæru til ráðuneytisins setningu reglugerða og annarra stjórnvaldsfyrirmæla, sbr. framangreint ákvæði 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Ráðuneytið mun því ekki taka afstöðu til málsástæðna í stjórnsýslukærunni sem byggðar eru á því að efni framangreindra ákvæða eigi að mati kæranda að vera með öðrum hætti. Stjórnsýslukæran beinist hins vegar jafnframt að tiltekinni ákvörðun Fiskistofu um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta til bátsins Karólínu ÞH-100 (2760) en umrædd ákvörðun er kæranleg til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins samkvæmt framangreindu ákvæði 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006.
    Með vísan til framanritaðs telur ráðuneytið ekki ástæðu til að vísa frá því kæruefni samkvæmt framangreindri stjórnsýslukæru og verður stjórnsýslukæran tekin til efnismeðferðar.

III.    Um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 gilda ákvæði 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Í 5. mgr. greinarinnar er ráðherra falið að setja með reglugerð almenn skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda til fiskiskipa innan einstakra byggðarlaga. Skulu þau skilyrði m.a. varða skráningarstað, skráningartíma, eignarhald, skiptingu milli fiskiskipa, lágmarksverð, tryggingar fyrir greiðslum og framkvæmd úthlutunar.
    Á grundvelli framangreinds ákvæðis hefur ráðherra sett reglugerð nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012. Í 1. gr. reglugerðarinnar eru talin upp almenn skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta á umræddu fiskveiðiári en þau eru: a) að skip hafi haft leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, b) að skip hafi verið skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. desember 2011 og c) að skip hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. desember 2011. Miðað skal við lögheimili einstaklinga samkvæmt þjóðskrá og heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.
    Einnig eru í 4. gr. reglugerðarinnar viðmiðanir um úthlutun aflaheimilda til einstakra fiskiskipa en samkvæmt ákvæðinu er gert ráð fyrir að úthlutun aflaheimilda skuli fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði reglugerðarinnar og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið hefur staðfest, eftir því sem við á, og skuli úthlutað hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2010 til 31. ágúst 2011. Komi minna en 100 þorskígildiskíló í hlut fiskiskips samkvæmt framangreindum reglum fellur niður hlutur þess og skiptist hlutur þess milli annarra fiskiskipa frá sama byggðarlagi sem uppfylla skilyrði fyrir úthlutun í samræmi við skiptingu samkvæmt úthlutunarreglum. Ennfremur koma fram í ákvæðinu nokkrar reglur um úthlutun byggðakvóta miðað við tiltekin skilyrði o.fl.
    Þá koma fram í reglugerðinni ákvæði um skyldu fiskiskipa til að landa afla til vinnslu í byggðarlagi, sbr. 6. gr. o.fl.
    Samkvæmt 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 getur ráðherra heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum sem víkja frá eða eru til viðbótar hinum almennu skilyrðum sem ráðherra setur í reglugerð, enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga. Sambærilegt ákvæði er í 2. gr. reglugerðar nr. 1182/2011.
    Sett hafa verið sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í Norðurþingi, m.a. á Kópaskeri fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 samkvæmt framangreindu ákvæði með auglýsingu (VII) nr. 551/2012, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta, sem ekki hafa áhrif á niðurstöðu þessa máls.
    Um skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa á Kópaskeri í Norðurþingi fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 fer því eftir 10. gr. laga nr. 116/2006, ákvæðum reglugerðar nr. 1182/2011 og auglýsingu (VII) nr. 551/2012.
    Í staflið c 1. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012, er skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til fiskiskips að það hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. desember 2011. Dodda ehf., eigandi og útgerðaraðili bátsins Karólínu ÞH-100 (2760) var með heimilisfang á Húsavík þann 1. desember 2011 samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra og uppfyllir því ekki skilyrði stafliðar c 1. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012.
    Með vísan til framanritaðs og þegar af þeirri ástæðu sem þar kemur fram er það niðurstaða ráðuneytisins að ekki séu skilyrði fyrir að úthluta af byggðakvóta Kópaskers í Norðurþingi fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Karólínu ÞH-100 (2760) en samkvæmt því ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 12. júlí 2012.

IV.    Stjórnsýslukæra í máli þessu er byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, en samkvæmt ákvæðinu er heimilt að kæra til ráðuneytisins, þ.e. nú atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins ákvarðanir Fiskistofu um úthlutun aflaheimilda samkvæmt ákvæðinu. Í greininni kemur fram að kærufrestur sé tvær vikur frá tilkynningu Fiskistofu um úthlutun eða höfnun umsókna um úthlutun.
    Ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993 gilda að mati ráðuneytisins einnig um meðferð þessa máls að því leyti sem ekki eru sérstök ákvæði um það í framangreindum lögum. Í 28. gr. laganna eru ákvæði um hvernig eigi að fara með þegar kæra berst að liðnum kærufresti. Þar segir að hafi kæra borist að liðnum kærufresti skuli vísa henni frá, nema: 1) afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr eða 2) veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar. Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.
    Stjórnsýslukæran er byggð á því m.a. að forsendur og niðurstaða hafi ekki verið rétt í úrskurði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, dags. 14. júlí 2011, í máli nr. SLR11030100, sem fjallaði um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2010/2011 á Kópaskeri í Norðurþingi. Einnig er stjórnsýslukæran byggð á því að forsendur og niðurstaða hafi ekki verið rétt í úrskurði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, dags. 6. mars 2012, í máli nr. SLR11110179, sem fjallaði um endurúthlutun byggðakvóta á Kópaskeri í Norðurþingi fyrir fiskveiðiárið 2010/2011.
    Ákvörðun Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta á Kópaskeri í Norðurþingi fyrir fiskveiðiárið 2010/2011 til báts kæranda, Karólínu ÞH-100 (2760) á grundvelli úrskurðar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, dags. 14. júlí 2011, í máli nr. SLR11030100 var tilkynnt kæranda 25. júlí 2011 og ákvörðun Fiskistofu um endurúthlutun byggðakvóta á Kópaskeri fyrir fiskveiðiárið 2010/2011 til framangreinds báts kæranda, Karólínu ÞH-100 (2760) á grundvelli úrskurðar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, dags. 1. mars 2012, í máli nr. SLR11110179 var tilkynnt kæranda með bréfi Fiskistofu, dags. 6. mars 2012. Þegar litið er til framanritaðs er ljóst að kærufrestur er liðinn í máli þessu vegna framangreindrar ákvörðunar Fiskistofu, dags. 25. júlí 2011. Einnig er ljóst að kærufrestur í máli þessu er liðinn vegna framangreindrar ákvörðunar Fiskistofu, dags. 6. mars 2012.
    Með vísan til framanritaðs og þegar af þeirri ástæðu sem þar kemur fram er vísað frá stjórnsýslukæru kæranda í máli þessu á ákvörðun Fiskistofu, dags. 25. júlí 2011, um úthlutun af byggðakvóta Kópaskers í Norðurþingi fyrir fiskveiðiárið 2010/2011 til bátsins Helgu Sæm ÞH-76 (6945). Einnig er vísað frá stjórnsýslukæru á ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. mars 2012, um endurúthlutun af byggðakvóta Kópaskers í Norðurþingi fyrir fiskveiðiárið 2010/2011 til bátsins Helgu Sæm ÞH-76 (6945).
    Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær er að rekja til mikilla anna í ráðuneytinu.


Úrskurður

    Ráðuneytið staðfestir ákvörðun Fiskistofu, dags. 12. júlí 2012, um að hafna umsókn kæranda, Doddu ehf. um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Karólínu ÞH-100, skipaskrárnúmer 2760.
    Stjórnsýslukæru Doddu ehf. í máli þessu á ákvörðun Fiskistofu, dags. 25. júlí 2011, um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2010/2011 til bátsins Helgu Sæm ÞH-76, skipaskrárnúmer 6945, er vísað frá.
    Stjórnsýslukæru Doddu ehf. í máli þessu á ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. mars 2012, um endurúthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2010/2011 til bátsins Helgu Sæm ÞH-76, skipaskrárnúmer 6945, er vísað frá.

Fyrir hönd ráðherra

Ingvi Már Pálsson.
Sigríður Norðmann.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum