Hoppa yfir valmynd
19. nóvember 2012 Matvælaráðuneytið

Veiðifélags Mývatns, kærir ákvörðun stjórnar Fiskræktarsjóðs, dags. 24. apríl 2012, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun úr sjóðnum fyrir almanaksárið 2012.

Stjórnsýslukæra

    Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru, dags. 23. júlí 2012, sem barst ráðuneytinu sama dag, frá Jóni Inga Hinrikssyni f.h. Veiðifélags Mývatns, Garði 2, 660 Mývatni, þar sem kærð er til ráðuneytisins ákvörðun stjórnar Fiskræktarsjóðs, dags. 24. apríl 2012, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun úr sjóðnum fyrir almanaksárið 2012.
    Stjórnsýslukæran er byggð á 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.


Kröfur kæranda

    Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi ákvörðun stjórnar Fiskræktarsjóðs, dags. 24. apríl 2012, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun úr Fiskræktarsjóði fyrir almanaksárið 2012.


Málsatvik

    Málsatvik eru þau að með auglýsingu, ódags. sem birt var í Bændablaðinu 19. janúar 2012 og einnig í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu 21. janúar 2012, auglýsti Fiskræktarsjóður eftir umsóknum um úthlutun styrkja úr sjóðnum, sbr. 8. gr. laga nr. 72/2008, um Fiskræktarsjóð, með síðari breytingum. Umsóknarfrestur var til og með 1. mars 2012.
    Kærandi sótti um úthlutun styrks úr sjóðnum með umsókn, dags. 29. febrúar 2012, en í umsókninni var lýsing á því verkefni sem umsóknin var byggð á.
    Með bréfi, dags. 24. apríl 2012, tilkynnti stjórn Fiskræktarsjóðs kæranda þá ákvörðun stjórnarinnar að hafna umsókn veiðifélagsins. Í ákvörðuninni segir m.a.: "Með umsókn yðar til Fiskræktarsjóðs dags. 29. febrúar 2012 var óskað eftir styrk úr sjóðnum vegna verkefnisins: Gönguhegðun silungs í Mývatni. Stjórn Fiskræktarsjóðs telur því miður ekki unnt að veita þessari umsókn styrk þar sem hún fellur ekki undir verksvið sjóðsins."
    Þá kom fram í ákvörðun stjórnar Fiskræktarsjóðs að hún væri kæranleg til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og að kærufrestur væri þrír mánuðir frá því að kæranda barst framangreind tilkynning, sbr. 1. mgr. 27. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.


Málsástæður með stjórnsýslukæru o.fl.

    Með stjórnsýslukæru, dags. 23. júlí 2012, sem barst ráðuneytinu með tölvubréfi sama dag, kærði Jón Ingi Hinriksson f.h. Veiðifélags Mývatns framangreinda ákvörðun stjórnar Fiskræktarsjóðs til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.
    Í stjórnsýslukærunni segir m.a. að Veiðifélag Mývatns kæri framangreinda ákvörðun stjórnar Fiskræktarsjóðs enda sé ljóst að verkefnið sé á starfssviði Fiskræktarsjóðs samkvæmt lögum sjóðsins en um það sé m.a. vísað til ákvarðana stjórnar Fiskræktarsjóðs um styrkveitingar undanfarin ár.
    Eftirtalin gögn fylgdu stjórnsýslukærunni: ljósrit af umsókn kæranda, dags. 29. febrúar 2012, o.fl.
    Með bréfi, dags. 14. ágúst 2012, óskaði ráðuneytið eftir umsögn stjórnar Fiskræktarsjóðs um málið, staðfestu afriti af hinni kærðu ákvörðun auk annarra gagna sem stjórn Fiskræktarsjóðs kynni að hafa um málið.
    Með tölvubréfi frá 29. ágúst 2012 barst ráðuneytinu umsögn stjórnar Fiskræktarsjóðs um málið. Þar segir m.a.:

"Niðurstaða stjórnar var að hafna umræddri umsókn. Stjórn Fiskræktarsjóðs bendir á að stjórnin er sjálfstæð í störfum sínum að gildandi lögum og telur afgreiðslu umræddrar umsóknar falla innan ramma þeirra laga sem gilda um Fiskræktarsjóð. Stjórnin leggur áherslu á að afgreiðslan á umræddu verkefni sem lá til grundvallar þeirri umsókn sem kæran byggir á er í samræmi við tilgang laga um styrkveitingar úr sjóðnum til rannsókna og þýðingu þeirra til að efla fiskistofna í ám og vötnum. Því verður hvorki séð að stjórnin hafi ekki uppfyllt lagaskyldu eða farið út fyrir þann lagaramma sem styrkveitingum er settur við afgreiðslu á hinni kærðu umsókn."

    Eftirtalin gögn fylgdu umsögn stjórnar Fiskræktarsjóðs: ljósrit af hinni kærðu ákvörðun stjórnar Fiskræktarsjóðs, dags. 24. apríl 2012.
    Með tölvubréfi frá 12. nóvember 2012 óskaði ráðuneytið eftir tilteknum frekari upplýsingum og gögnum frá stjórn Fiskræktarsjóðs og bárust umræddar upplýsingar og gögn með tölvubréfi frá 13. nóvember 2012.


Rökstuðningur


I.    Með tölvubréfi frá 23. júlí 2012 var stjórnsýslukæra í máli þessu móttekin af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, sem fór með málefni samkvæmt lögum nr. 72/2008, um Fiskræktarsjóð, með síðari breytingum. Með forsetaúrskurði nr. 99/2012, um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti, voru sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og efnahags- og viðskiptaráðuneyti sameinuð í nýtt ráðuneyti, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, og tók úrskurðurinn gildi 1. september 2012. Úrskurður í máli þessu er því kveðinn upp af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem nú fer með málefni samkvæmt lögum nr. 72/2008 og tók við eldri málum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins samkvæmt þeim lögum.

II.    Um Fiskræktarsjóð gilda ákvæði laga nr. 72/2008, um Fiskræktarsjóð, með síðari breytingum. Þar segir m.a. í 1. gr. að Fiskræktarsjóður sé sjálfstæður sjóður í eigu ríkisins og á forræði ráðherra sem hefur það hlutverk að veita lán eða styrki til verkefna sem þjóna þeim markmiðum að efla fiskrækt, bæta veiðiaðstöðu, styðja við rannsóknir í ám og vötnum og auka verðmæti veiði úr þeim. Í 2. gr. kemur fram að Fiskræktarsjóður lýtur fimm manna stjórn sem ráðherra skipar til fjögurra ára í senn. Í 3. gr. kemur fram að stjórn Fiskræktarsjóðs hafi yfirumsjón með starfsemi sjóðsins. Verkefni stjórnar séu m.a. að taka ákvarðanir um úthlutanir og útgjöld. Í 8. gr. er fjallað um úthlutanir úr Fiskræktarsjóði. Verklagsreglur fyrir starfsemi sjóðsins eru birtar á vefsíðu Fiskistofu sem er: www.fiskistofa.is. Um málsmeðferð við veitingu lána og styrkja gilda ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
    
III.     Fiskræktarsjóður hefur tiltekið ráðstöfunarfé til úthlutunar fyrir almanaksárið 2012 samkvæmt lögum nr. 72/2008, um Fiskræktarsjóð, með síðari breytingum, og ljóst er að ekki er unnt að veita styrki samkvæmt öllum umsóknum sem hafa borist stjórn sjóðsins. Það er samkvæmt því mat ráðuneytisins að stjórn sjóðsins hafi ákveðið svigrúm til að velja þau verkefni sem ákveðið er að úthluta styrkjum til fyrir almanaksárið.
    Þegar litið er til framanritaðs verður að telja að hlutverk ráðuneytisins við endurskoðun á hinni kærðu ákvörðun stjórnar Fiskræktarsjóðs, dags. 24. apríl 2012, í máli þessu takmarkist við úrlausn um hvort gætt hafi verið laga og stjórnvaldsreglna við ákvörðunina, þ.m.t. hvort ákvörðunin sé byggð á lögmætum og málefnalegum sjónarmiðum, en ekki að leggja efnislegt mat á einstakar umsóknir.
    Ráðuneytið hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun stjórnar Fiskræktarsjóðs, dags. 24. apríl 2012 í máli þessu og málsmeðferð stjórnar Fiskræktarsjóðs við ákvörðunina. Það er mat ráðuneytisins að stjórn Fiskræktarsjóðs hafi við meðferð málsins og ákvörðunina farið eftir ákvæðum laga nr. 72/2008, um Fiskræktarsjóð, stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og öðrum reglum stjórnsýsluréttarins. Einnig er það mat ráðuneytisins að hin kærða ákvörðun stjórnar Fiskræktarsjóðs, dags. 24. apríl 2012, í máli þessu sé byggð á lögmætum og málefnalegum sjónarmiðum.
    Með vísan til framanritaðs er það niðurstaða ráðuneytisins að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun stjórnar Fiskræktarsjóðs í máli þessu.
    Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær er að rekja til mikilla anna í ráðuneytinu.


Úrskurður

    Ráðuneytið staðfestir ákvörðun stjórnar Fiskræktarsjóðs, dags. 24. apríl 2012, um að hafna umsókn kæranda, Veiðifélags Mývatns, um úthlutun úr Fiskræktarsjóði fyrir almanaksárið 2012.

Fyrir hönd ráðherra

Ingimar Jóhannsson.
Sigríður Norðmann.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum