Hoppa yfir valmynd
23. nóvember 2012 Matvælaráðuneytið

Starf lögfræðings á skrifstofu viðskiptahátta laust til umsóknar

Í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu er laust til umsóknar starf lögfræðings á  skrifstofu viðskiptahátta.

Auglýsing á Starfatorgi.

Starfið lýtur einkum að verkefnum á sviði raforkumarkaða, samkeppnismála og almennra viðskiptamála en í starfinu felast jafnframt önnur verkefni s.s. afgreiðsla almennra stjórnsýslumála.

Undir skrifstofuna heyra m.a. málefni er varða raforkumarkað, samkeppnisrétt, fjármálamarkað, endurskoðun, ársreikninga, félagarétt, kauparétt, hugverkaréttindi og erlenda fjárfestingu. Þá eru Einkaleyfastofa, Fjármálaeftirlitið,Samkeppniseftirlitið og raforkueftirlit Orkustofnunar á ábyrgð skrifstofunnar.

Helstu verkefni eru á sviði raforkumarkaða, samkeppnismála og almennra viðskiptamála

  • Þátttaka í stefnumörkun á sviði raforkumarkaða, hitaveitna, samkeppnismála og almennra viðskiptamála.
  • Samning lagafrumvarpa og reglugerða
  • Verkstjórn verkefna á ábyrgðarsviði og stjórnun vinnuhópa og nefnda
  • Samskipti við Alþingi og hagsmunaaðila
  • Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Kandídats- eða meistarapróf í lögfræði
  • Reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu nauðsynleg
  • Reynsla eða þekking á málefnum raforkumarkaða nauðsynleg
  • Reynsla eða þekking á Evrópurétti og EES-samningnum nauðsynleg
  • Reynsla eða þekking á samkeppnisrétti æskileg
  • Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku nauðsynleg
  • Góð kunnátta í ensku skilyrði og kunnátta í einu Norðurlandamáli æskileg
  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum

Um fullt starf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um laun og önnur starfskjör fer samkvæmt kjarasamningi FHSS og fjármálaráðherra.

Nánari upplýsingar veitir Valgerður Rún Benediktsdóttir skrifstofustjóri  ([email protected]).

Umsóknarfrestur er til og með 8. desember n.k. og skal umsóknum skilað til á netfang atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, [email protected]. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar starfsferilskrár og kynningarbréf þar sem rökstudd er hæfni viðkomandi í starfið og gerð grein fyrir ástæðu umsóknar.

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.

Athygli er vakin á því, að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum, nr. 464/1996, sem settar eru samkvæmt heimild í 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum