Hoppa yfir valmynd
6. desember 2012 Forsætisráðuneytið

Styrkveiting Þjóðhátíðarsjóðs til Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum 

Í tilefni af síðustu styrkveitingu Þjóðhátíðarsjóðs
Í tilefni af síðustu styrkveitingu Þjóðhátíðarsjóðs

Kveðið var á um stofnun Þjóðhátíðarsjóðs í tilefni af 1100 ára búsetu á Íslandi, og gefin út skipulagsskrá þremur árum síðar nr. 361/1977. Frá þeim tíma hefur sjóðurinn úthlutað styrkjum árlega allt til ársins 2011, eða í 34 ár.

Árið 2006 var skipulagsskrá sjóðsins breytt þannig að leggja skyldi Þjóðhátíðarsjóð niður og ráðstafa öllu fé sjóðsins til styrkveitinga fram til ársins 2011 í samræmi við tilgang hans, sbr. þingsályktun 5/133. Í ályktuninni var enn fremur kveðið á um að verði eitthvað eftir af fjármunum í sjóðnum eftir að árlegum úthlutunum styrkja sjóðsins lýkur skuli stjórn sjóðsins án þess að auglýsa eftir umsóknum ráðstafa slíku fé í samræmi við tilgang sjóðsins.

Í samræmi við nefnda skipulagsbreytingu hefur stjórn Þjóðhátíðarsjóðs því ákveðið að veita Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum styrk að fjárhæð kr. 892.790, sem jafnframt er síðasti styrkur sjóðsins, til viðgerðar á Flateyjarbók.

Hlutverki Þjóðhátíðarsjóðs er þar með lokið.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum