Hoppa yfir valmynd
7. desember 2012 Matvælaráðuneytið

Heimildir til síldveiða í Breiðafirði auknar um 300 tonn

Ákveðið hefur verið að bæta 300 tonnum við heimildir til síldveiða með reknet í Breiðafirði og telst það lokaúthlutun þessa fiskveiðiárs og er heildarmagnið þá orðið 900 tonn.

Undanfarin tvö fiskveiðiár hafa verið stundaðar veiðar á síld í reknet í Breiðafirði að haustlagi og fyrri part vetrar. Komið hefur í ljós að þær eru kærkomin viðbót við fjölbreytileika íslensks sjávarútvegs. Síldveiðar bæði stórra og smárra báta í Breiðafirði nú í haust hafa gengið vel, umgengni batnað og þá virðist sýking í síldinni heldur á undanhaldi sem betur fer.

Ákveðið hefur verið að bæta 300 tonnum við heimildir til síldveiða með reknet í Breiðafirði og telst það lokaúthlutun þessa fiskveiðiárs og er heildarmagnið þá orðið 900 tonn. Heimildin  byggir á ákvæði til bráðabirgða VIII við lög nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða. Þar segir að á fiskveiðiárunum 2010/11, 2011/12 og 2012/13 sé heimilt að úthluta sérstaklega 2.000 tonnum af íslenskri síld hvert ár. Við samþykkt heimildarinnar var við það miðað að á hverju fiskveiðiári  væru til ráðstöfunar 500 tonn af 2.000 tonnum til framangreindra veiða með reknet en það sem eftir stæði var ætlað á móti óhjákvæmilegum meðafla við makrílveiðar. Heimildin hvað reknetaveiðarnar varðar hefur ekki verið að fullu nýtt samtals þessi þrjú fiskveiðiár þannig að því gefst möguleiki á að bæta 300 tonnum við sem lokaúthlutun á fiskveiðiárinu 2012/13.


 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum