Hoppa yfir valmynd
10. desember 2012 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um próf til viðurkenndra bókara

Frestur til að skrá sig í eftirfarandi próf og greiða prófgjöld er 12. nóvember 2012

  • Reikningshald 3. desember – prófið hefst kl. 15 og stendur til kl. 18
  • Raunhæft verkefni 10. desember - prófið hefst kl. 14 og stendur til kl. 19

Próftökugjald fyrir hvert próf er kr. 25.000.
Væntanlegir prófmenn skulu skrá sig til prófs á netfang prófnefndar [email protected] eða símleiðis í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið í síma 5459700.

Tilkynning um greiðslu próftökugjalds skal senda á netfang prófnefndar [email protected] og skal fylgja nafn prófmanns og kennitala, heimilisfang, tölvupóstfang og staðfesting um að fullnægt sé skilyrðum 43. gr. laga nr.145/1994  ásamt kvittun fyrir greiðslu prófgjalds. Greiða skal prófgjald inn á reikning ríkissjóðs: 0001-26-025017, kt. 540269-6459.

Prófnefnd viðurkenndra bókara
Nánar um Prófnefnd bókara 2011-2015 á heimasíðu ráðuneytisins.

Vinnuskjöl vegna prófs til viðurkenningar bókara.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum