Viðræður milli Íslands og Grænlands um grásleppu
Í dag áttu þau Steingrímur J Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra og Ane Hansen, sjávarútvegsráðherra Grænlands símafund þar sem málefni tengd grásleppu voru fyrirferðarmikil. Ræddu þau sérstaklega stöðuna á mörkuðum fyrir grásleppuhrogn sem og hugsanlegar veiðitakmarkanir á næsta ári í samræmi við ráðleggingar fiskifræðinga.