Hoppa yfir valmynd
14. desember 2012 Matvælaráðuneytið

Krókaleiðir ehf. kærir ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. júní 2012, um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðárið 2011/2012 til bátsins Óskars SK-13, skipaskrárnúmer 7022.

Stjórnsýslukæra

    Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru frá Þorvaldi Steingrímssyni f.h. Krókaleiða ehf., Bárustíg 14, Sauðárkróki, ódags., sem barst sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu 19. júní 2012, þar sem kærð er til ráðuneytisins ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. júní 2012, um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðárið 2011/2012 til bátsins Óskars SK-13, skipaskrárnúmer 7022.

    Kæruheimild er í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.


Kröfur kæranda

    Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi hin kærða ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. júní 2012, um úthlutun byggðakvóta til bátsins Óskars SK-13 (7022) og að lagt verði fyrir Fiskistofu að úthluta byggðakvóta til bátsins í samræmi við kröfur og málsástæður í stjórnsýslukærunni.


Málsatvik

    Málsatvik eru þau að með auglýsingu, dags. 23. maí 2012, sem birt var í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu 24. sama mánaðar, auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 í nokkrum byggðarlögum, m.a. á Sauðárkróki í Sveitarfélaginu Skagafirði, en auglýsingin var byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sbr. og 2. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012. Einnig var framangreind auglýsing birt á vefsíðu Fiskistofu og tölvupóstur með auglýsingunni sendur til viðkomandi sveitarfélaga þar sem þau voru beðin um að setja frétt um auglýsinguna inn á sínar heimasíður. Umsóknarfrestur var til og með 6. júní 2012. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hafði þá úthlutað 137 þorskígildistonnum af byggðakvóta til Sveitarfélagsins Skagafjarðar samkvæmt umsókn sveitarfélagsins á grundvelli reglugerðar nr. 1181/2011, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2011/2012, sem skiptust á byggðarlögin Sauðárkrók, 66 þorskígildistonn og Hofsós, 71 þorskígildistonn. Úthlutunin var tilkynnt Sveitarfélaginu Skagafirði með bréfi ráðuneytisins, dags. 21. desember 2011.
    Kærandi sótti um byggðakvóta fyrir bátinn Óskar SK-13 (7022) með umsókn til Fiskistofu, dags. 24. maí 2012.
    Hinn 7. júní 2012 tilkynnti Fiskistofa eigendum og útgerðaraðilum báta í Sveitarfélaginu Skagafirði, m.a. á Sauðárkróki ákvarðanir sínar um úthlutun byggðakvóta til báta í byggðarlögum sveitarfélagsins. Kæranda var tilkynnt að 4.192 þorskígildiskíló hafi komið í hlut bátsins Óskars SK-13 (7022). Ákvörðun Fiskistofu var byggð á 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, reglugerð nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012 og auglýsingu (V) nr. 444/2012, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta. Einnig kom fram í ákvörðun Fiskistofu að hún væri með fyrirvara um að úrskurðir ráðuneytisins í kærumálum gætu breytt þeirri niðurstöðu sem þar kom fram.
    Þá kom fram í ákvörðun Fiskistofu að hún væri kæranleg til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindri tilkynningu um úthlutun.


Málsrök í stjórnsýslukæru o.fl.

    Með stjórnsýslukæru, ódags. sem barst ráðuneytinu 19. júní 2012, kærði kærandi, Krókaleiðir ehf., til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins framangreinda ákvörðun Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta til bátsins Óskars SK-13 (7022).
    Í stjórnsýslukærunni segir m.a. að kærandi óski eftir leiðréttingu á úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 vegna bátsins Óskars SK-13 (7022) með vísan til þess m.a. að kærandi telji að hann hafi verið á svipuðum veiðum og annar tiltekinn bátur, sem hafi fengið úthlutað meira magni af byggðakvóta.
    Með bréfi til Fiskistofu, dags. 25. júní 2012, óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu um málið, staðfestu afriti af hinni kærðu ákvörðun, auk annarra gagna sem Fiskistofa kynni að hafa um málið.
    Í bréfi Fiskistofu, dags. 4. júlí 2012, sem barst ráðuneytinu 6. sama mánaðar, kemur fram m.a. að eins og komi fram í 1. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012, hafi aflamarki sem féll til viðkomandi byggðarlags verið skipt miðað við afla þeirra skipa sem áttu rétt á úthlutun, sem landað höfðu í byggðarlaginu á tímabilinu 1. september 2010 til 31. ágúst 2011. Á meðfylgjandi yfirliti Fiskistofu, dags. 7. júní 2012, komi fram að afli bátsins Óskars SK-13 (7022) hafi á þessu tímabili verið 17.609 þorskígildiskíló, en annar tiltekinn bátur sem vísað sé til í stjórnsýslukæru hafi veitt meiri afla á því tímabili sem kemur fram í 1. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 1182/2011. Þessar aflatölur hafi verið lagðar til grundvallar þegar úthlutun byggðakvóta fór fram. Samkvæmt ofangreindu sé það ekki rétt sem komi fram í stjórnsýslukæru að veiðar bátsins Óskars SK-13 (7022) og umrædds annars báts hafi verið sambærilegar.
    Umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins fylgdu eftirfarandi gögn m.a.: 1) ljósrit af hinni kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. júní 2012, 2) yfirlit um úthlutun byggðakvóta á Sauðárkróki fyrir fiskveiðiárið 2011/2012, dags. 7. júní 2012 og 3) ljósrit af umsókn kæranda, dags. 24. maí 2012.
    Með bréfi, dags. 11. júlí 2012, sendi ráðuneytið ljósrit af umsögn Fiskistofu til kæranda og veitti honum kost á að að gera athugasemdir við umsögnina, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Frestur til þess var veittur til og með 26. júlí 2012.
    Engar athugasemdir bárust ráðuneytinu frá kæranda, Krókaleiðum ehf., um framangreinda umsögn Fiskistofu.


Rökstuðningur

I.    Með bréfi, ódags. sem barst ráðuneytinu 19. júní 2012, var stjórnsýslukæra í máli þessu móttekin af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, sem fór með málefni samkvæmt lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Með forsetaúrskurði nr. 99/2012, um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti, voru sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og efnahags- og viðskiptaráðuneyti sameinuð í nýtt ráðuneyti, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, og tók úrskurðurinn gildi 1. september 2012. Úrskurður í máli þessu er því kveðinn upp af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem nú fer með málefni samkvæmt lögum nr. 116/2006 og tók við eldri málum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins samkvæmt þeim lögum.

II.    Um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 gildir ákvæði 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Í 5. mgr. greinarinnar er ráðherra falið að setja með reglugerð almenn skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda til fiskiskipa innan einstakra byggðarlaga. Skulu þau skilyrði m.a. varða skráningarstað, skráningartíma, eignarhald, skiptingu milli fiskiskipa, lágmarksverð, tryggingar fyrir greiðslum og framkvæmd úthlutunar.
    Á grundvelli framangreinds ákvæðis hefur ráðherra sett reglugerð nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012. Í 1. gr. reglugerðarinnar eru talin upp almenn skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta en þau eru: a) að skip hafi haft leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, b) að skip hafi verið skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. desember 2011 og c) að skip hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. desember 2011. Miðað skal við lögheimili einstaklinga samkvæmt þjóðskrá og heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.
    Einnig eru í 4. gr. reglugerðarinnar viðmiðanir um úthlutun aflaheimilda til einstakra fiskiskipa en samkvæmt ákvæðinu er gert ráð fyrir að úthlutun aflaheimilda skuli fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla almenn skilyrði reglugerðarinnar og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið hefur staðfest, eftir því sem við á og skuli úthlutað hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags miðað við allan landaðan afla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu frá 1. september 2010 til 31. ágúst 2011. Þá segir þar að vikið skuli frá þessari takmörkun á hlut hvers fiskiskips fáist heildarhlut viðkomandi byggðarlags ekki skipt með öðrum hætti. Komi minna en 100 þorskígildiskíló í hlut fiskiskips samkvæmt framangreindum reglum fellur niður úthlutun til þess og skiptist hlutur þess milli annarra fiskiskipa frá sama byggðarlagi sem uppfylla skilyrði fyrir úthlutun í samræmi við skiptingu samkvæmt úthlutunarreglum.
    Þá koma fram í reglugerðinni ákvæði um skyldu fiskiskipa til að landa afla til vinnslu í byggðarlagi, sbr. 6. gr. o.fl.
    Samkvæmt 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, getur ráðherra heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum, enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga. Sambærilegt ákvæði er í 2. gr. reglugerðar nr. 1182/2011.
    Sett hafa verið sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í Sveitarfélaginu Skagafirði, m.a. á Sauðárkróki fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 samkvæmt framangreindu ákvæði með auglýsingu (V) nr. 444/2012, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta. Þar segir m.a.: "a) Nýtt ákvæði í 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Hámarksúthlutun til fiskiskips yfir 50 brúttótonnum, af því aflamarki sem fallið hefur innan viðkomandi byggðarlags, verður 5 þorskígildistonn. b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa í því byggðarlagi sem byggðakvótinn tilheyrir, til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2011 til 31. ágúst 2012 afla sem nemur, í þorskígildum talið, að lágmarki 88% af magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari og skal úthlutun til þeirra ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði er uppfyllt skv. vigtunar- og ráðstöfunarskýrslum sem borist hafa Fiskistofu."
    Um skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa í Sveitarfélaginu Skagafirði, m.a. á Sauðárkróki fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 fer því eftir 10. gr. laga nr. 116/2006, ákvæðum reglugerðar nr. 1182/2011 og auglýsingu (V) nr. 444/2012.
    Eins og gerð hefur verið grein fyrir hér að framan kemur fram í 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, með síðari breytingum, að við útreikning á hlut fiskiskipa af byggðakvóta byggðarlaga er miðað við landaðan afla í byggðarlaginu Sauðárkróki í Sveitarfélaginu Skagafirði á tímabilinu 1. september 2010 til 31. ágúst 2011. Með auglýsingu (V) nr. 444/2012 var framangreindu ákvæði hins vegar breytt fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð, m.a. Sauðárkrók, á þann veg að þar kemur fram að hámarksúthlutun til fiskiskipa yfir 50 brúttótonnum, af því aflamarki sem fallið hefur innan viðkomandi byggðarlags, verði 5 þorskígildistonn.
    Byggðakvóti Sauðárkróks í Sveitarfélaginu Skagafirði var eins og áður hefur verið gerð grein fyrir 66 þorskígildistonn og skiptist á 19 báta samkvæmt framangreindum reglum.
    Með tölvubréfi frá 28. nóvember 2012 óskaði ráðuneytið eftir að Fiskistofa sendi ráðuneytinu upplýsingar um hvernig byggðakvóti til bátsins Óskars SK-13 (7022) fyrir fiskveiðiárið 2011/2012, hafi verið ákveðinn, samkvæmt hinni kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. júní 2012.
    Með tölvubréfi frá 28. nóvember 2012 svaraði Fiskistofa framangreindri fyrirspurn ráðuneytisins. Ráðuneytið hefur farið yfir forsendur útreiknings byggðakvóta til bátsins Óskars SK-13 (7022) sem koma fram í framangreindu tölvubréfi Fiskistofu frá 28. nóvember 2012, og er það mat ráðuneytisins að þær séu í samræmi við þær reglur sem koma fram í 1. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 1182/2011 og auglýsingu (V) nr. 444/2012.
    Báturinn Óskar SK-13 (7022) landaði 17.609 þorskígildiskílóum af afla á Sauðárkróki í Sveitarfélaginu Skagafirði á framangreindu tímabili. Samkvæmt framangreindum reglum reiknaðist hlutur bátsins af byggðakvóta Sauðárkróks í Sveitarfélaginu Skagafirði fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 vera 4.192 þorskígildiskíló.
    Þegar litið er til framanritaðs verður að telja að úthlutun byggðakvóta til bátsins Óskars SK-13 (7022) sé rétt samkvæmt hinni kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. júní 2012.
    Með vísan til framanritaðs er það mat ráðuneytisins að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. júní 2012, um úthlutun af byggðakvóta Sauðárkróks í Sveitarfélaginu Skagafirði til bátsins Óskars SK-13 (7022).
    Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær er að rekja til mikilla anna í ráðuneytinu.


Úrskurður    

    Ráðuneytið staðfestir ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. júní 2012, um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Óskars SK-13, skipaskrárnúmer 7022.


Fyrir hönd ráðherra


Ingvi Már Pálsson

        Sigríður Norðmann

            

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum