Styrkir til vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar vorið 2013
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til fyrirtækja eða stofnana sem taka nemendur í vinnustaðanám.
Markmið styrkjanna er að hvetja fyrirtæki eða stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.
Umsækjendur skulu uppfylla almenn skilyrði gildandi reglugerðar um námssamninga og starfsþjálfun um hæfi til þess að annast nemendur í starfsnámi. Þeir skulu hafa á að skipa hæfum tilsjónaraðila með náminu og leggja fram áætlun um vinnustaðanámið og fyrirsjáanlega framvindu þess.
- Fjárhæð styrkja ræðst af framlögum á fjárlögum til málaflokksins og eru þeir veittir til 24 vikna að hámarki. Styrkur er greiddur eftir því sem námi vindur fram.
- Umsóknum er skilað á sérstöku eyðublaði. Umsókn skal fylgja yfirlit um framvindu vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar.
- Nánari upplýsingar veitir Ólafur Grétar Kristjánsson í síma 545 9500 eða í tölvupósti á [email protected]
- Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2013.