Hoppa yfir valmynd
19. desember 2012 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á ostum frá Noregi.

Með vísan til 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og til reglugerðar nr. 1054/2012, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á smurostum frá Noregi og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. janúar – 31. desember  2013. 

 

  Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
Úr tollskrárnr.:     kg % kr./kg
0406.3000 Smurostur 01.01.-31.12.13 13.000 0 0

 

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal hlutkesti ráða úthlutun tollkvóta vörunnar. Úthlutun er ekki framseljanleg. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar vegna innflutnings á landbúnaðarvörum nr. 448/2012.

 

Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 15:00 föstudaginn 4. janúar 2013.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu,

19. desember 2012.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum