Hoppa yfir valmynd
7. janúar 2013 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-nóvember 2012

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu ellefu mánuði ársins 2012 liggur nú fyrir. Handbært
fé frá rekstri batnaði á milli ára og var neikvætt um 51,1 ma.kr. samanborið við 70,3 ma.kr.
á sama tímabili 2011.

Tekjur reyndust 43,2 ma.kr. hærri en í fyrra á meðan að gjöldin jukust um 18,9 ma.kr. milli ára.

Þetta er betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlunum þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé frá rekstri yrði neikvætt um 60,4 ma.kr. Hluti af því fráviki skýrist með því að raundreifing gjalda og tekna hefur verið önnur en gert var ráð fyrir. Inni í heimildum er búið að taka tillit til fjárheimildastöðu frá fyrra ári.

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-nóvember 2012.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum