Hoppa yfir valmynd
8. janúar 2013 Innviðaráðuneytið

Námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar

Fjölbýlishús
Fjölbýlishús

Prófnefnd leigumiðlara heldur námskeið og próf sem veitir réttindi til leigumiðlunar í febrúar og mars ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið er haldið í samstarfi velferðarráðuneytisins og Endurmenntunar Háskóla Íslands. Tilkynna skal um þátttöku eigi síðar en 28. janúar næstkomandi.

Námskeiðið er haldið samkvæmt húsaleigulögum, nr. 36/1994, og reglugerð um leigumiðlun, nr. 675/1994.

Samkvæmt húsaleigulögum mega þeir einir reka miðlun um leiguhúsnæði, þ.e. koma á leigusamningi, annast framleigu eða skipti á leiguhúsnæði sem hlotið hafa til þess sérstakt leyfi velferðarráðherra. Til að fá leyfi þarf að ljúka námskeiði og prófi. Lögfræðingar eru undanþegnir námskeiði og próftöku.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum