Hoppa yfir valmynd
7. febrúar 2013 Utanríkisráðuneytið

Norðurslóðanet stofnað á Akureyri og Nansen prófessor kominn til starfa

Össur Skarphéðinsson og Stefán Sigurðsson

Í dag var Norðurslóðanet Íslands stofnað formlega með undirritun samnings milli utanríkisráðuneytisins og Norðurslóðanetsins í Rannsóknarhúsinu Borgum á Akureyri. Af því tilefni var efnt til móttöku í Borgum og fluttu utanríkisráðherra Össur Skarphéðinsson og Stefán Sigurðsson formaður stjórnar Norðurslóðanetsins og rektor Háskólans á Akureyri ásamt Pétri Þór Jónassyni framkvæmdstjóra Eyþings stutt ávörp. Við sama tilefni var Dr. Natalia Loukacheva boðin velkomin til starfa við Háskólanna á Akureyri sem fyrsti fræðimaðurinn sem gegnir Nansen prófessorsstöðu í norðurslóðafræðum við háskólann.

Norðurslóðanetið er hluti af sóknaráætlun landshluta sem Eyþing, samtök sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, ásamt utanríkisráðuneytinu, mennta- og menningarmálaráðuneytinu og umhverfis-og auðlindaráðuneytinu hafa undirbúið í samstarfi við fjölmarga aðila sem tengjast norðurslóðamálum á Akureyri. Megintilgangur Norðurslóðanets Íslands er að auka sýnileika og skilning á málefnum norðurslóða sem og starfsemi aðila sem vinna að málefnum norðurslóða á Íslandi.  Nýráðinn framkvæmdastjóri Norðurslóðanetsins er Embla Eir Oddsdóttir sem hefur um langt skeið unnið að verkefnum og rannsóknum er snúa að málefnum norðurslóða.

Stofnaðilar að Norðurslóðanetinu eru: Háskólinn á Akureyri, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, Heimskautaréttarstofnunin, Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri, Rannsóknaþing norðursins, Rannsóknamiðstöð Íslands, Rannsóknamiðstöð ferðamála, Arctic Portal, vinnuhópar Norðurskautsráðsins CAFF (Conservation of Arctic Flora and Fauna) og PAME (Protection of Arctic Marine Environment). Netið er vettvangur fyrir fyrirtæki og stofnanir alls staðar að af landinu sem koma að norðurslóðamálum.

Nansen prófessorsstaðan sem Natalia Loukacheva mun gegna næsta árið er liður í samstarfssamningi sem utanríkisráðherrar Íslands og Noregs undirrituðu 29. september 2011 á Akureyri. Staðan kennd við Fridtjof Nansen, hinn kunna norska heimskautafræðing og húmanista. Hún er veitt til eins árs í senn framúrskarandi vísindamanni sem starfar að málefnum er tengjast lagalegum, hagrænum, félagslegum og náttúrufarslegum aðstæðum á norðurslóðum.  Natalia er meðal fremstu sérfræðinga í málefnum norðurslóða  hvað varðar lög, stjórnmál og stjórnsýslu og hefur gefið út fjölmargar greinar og bækur um það efni. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum