Innritun í framhaldsskóla fyrir haustönn 2013
Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir innritun í framhaldsskóla fyrir haustönn 2013.
Forinnritun nemenda í 10. bekk verður 11. mars til 12. apríl
Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 1997 eða síðar) hefst mánudaginn 11. mars og lýkur
föstudaginn 12. apríl. Nemendur fá bréf frá Námsmatsstofnun með veflykli að innritunarvef og
leiðbeiningum afhent í grunnskólunum. Foreldrar/forráðamenn nemenda fá bréf í pósti frá
Námsmatsstofnun með upplýsingum um innritunina. Nemendur í 10. bekk eru eindregið hvattir
til að taka þátt í forinnrituninni.
Innritun annarra en 10. bekkinga verður 1. maí til 31. maí
Innritun eldri nemenda (fæddir 1996 eða fyrr) sem ekki eru nú í framhaldsskóla eða ætla að
skipta um skóla hefst miðvikudaginn 1. maí og lýkur föstudaginn 31. maí. Umsækjendur þurfa
að sækja veflykil sjá leiðbeiningar á innritunarvef á menntagatt.is.
Lokainnritun nemenda í 10. bekk verður 4. maí til 10. júní
Nemendur í 10. bekk hafa frest til sækja um nám í framhaldsskóla eða breyta umsóknum úr
forinnritun til miðnættis mánudaginn 10. júní. Einkunnir þeirra verða sendar rafrænt frá
grunnskólum til framhaldsskóla eftir skólaslit.
Starfsbrautir fyrir fatlaða
Rafrænni innritun á starfsbrautir lauk 28. febrúar síðastliðinn. Þeir sem ekki hafa þegar sótt um
geta þó sent viðkomandi framhaldsskóla skriflega umsókn til 1. apríl næstkomandi. Stefnt er að
afgreiðslu allra umsókna á starfsbrautir fyrir lok apríl.
Fjar- og dreifnám og nám í kvöldskóla
Innritun í fjar- og dreifnám og í kvöldskóla fer fram samkvæmt fyrirkomulagi sem einstakir
framhaldsskólar auglýsa.
Nánari upplýsingar um innritun í framhaldsskóla má fá á menntagatt.is
og hjá Námsmatsstofnun í síma 550 2400