Hoppa yfir valmynd
12. mars 2013 Matvælaráðuneytið

Endurupptaka á máli Sjávargæða ehf. um ákvörðun Fiskistofu, dags. 19. júlí 2012, um að ekki verði úthlutað byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Garðars ÍS-22 (2494).

Ákvörðun um endurupptöku máls.

    Með bréfi, dags. 20. desember 2012, sendi ráðuneytið kæranda, Sjávargæðum ehf. tilkynningu um að það hefði ákveðið að endurupptaka úrskurð atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, dags. 4. desember 2012, í máli nr. ANR12090439, með vísan til 1. tl. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 þar sem kemur fram að eftir að stjórnvald hefur tekið ákvörðun og hún verið tilkynnt aðila eigi aðili máls rétt á því að mál sé tekið til meðferðar á ný ef tiltekin skilyrði eru uppfyllt. Það niðurstaða ráðuneytisins að rétt sé að endurupptaka málið með vísan til þess að tilteknir annmarkar eru á eldri úrskurði ráðuneytisins, dags. 4. desember 2012.
    Ákvörðunin er byggð á því að með úrskurði atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, dags. 4. desember 2012, var stjórnsýslukæru kæranda í máli þessu, dags. 19. júlí 2012, vísað frá á þeim forsendum að engin umsókn hafi borist Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta til bátsins Garðars ÍS-22, skipaskrárnúmer 2494 og að engin ákvörðun hafi verið tekin af Fiskistofu um kröfur kæranda í málinu. Með tölvubréfi Fiskistofu til ráðuneytisins frá 18. desember 2012, upplýsti Fiskistofa hins vegar að stofnunin hefði tekið formlega ákvörðun í málinu, með bréfi, dags. 19. júlí 2012, en ljósrit af ákvörðuninni fylgdi framangreindu tölvubréfi Fiskistofu.


Stjórnsýslukæra

    Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru Sigurðar H. Garðarssonar f.h. Sjávargæða ehf. í bréfi, dags. 19. júlí 2012, sem barst ráðuneytinu 20. sama mánaðar, þar sem kærð er til ráðuneytisins ákvörðun Fiskistofu, dags. 19. júlí 2012, um að ekki verði úthlutað byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Garðars ÍS-22 (2494).

    Kæruheimild er í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.


Kröfur kæranda

    Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi hin kærða ákvörðun Fiskistofu, dags. 19. júlí 2012, um að ekki verði úthlutað byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Garðars ÍS-22 (2494) og að lagt verði fyrir Fiskistofu að úthluta af byggðakvóta Flateyrar í Ísafjarðarbæ fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins í samræmi við kröfur og málsástæður í stjórnsýslukærunni.


Málsatvik

    Málsatvik eru þau að með auglýsingu, dags. 21. júní 2012, sem birt var í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu 22. sama mánaðar, auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 í byggðarlögum Ísafjarðarbæjar, m.a. á Flateyri, en auglýsingin var byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, sbr. og 5. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012. Einnig var framangreind auglýsing birt á vefsíðu Fiskistofu og tölvupóstur með auglýsingunni sendur til viðkomandi sveitarfélaga þar sem þau voru beðin um að setja frétt um auglýsinguna inn á sínar heimasíður. Umsóknarfrestur var til og með 5. júlí 2012. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hafði þá úthlutað 530 þorskígildistonnum af byggðakvóta til Ísafjarðarbæjar, sem skiptust á byggðarlögin Hnífsdal, 19 þorskígildistonn, Þingeyri, 85 þorskígildistonn, Flateyri, 300 þorskígildistonn, Suðureyri, 60 þorskígildistonn og Ísafjörð, 66 þorskígildistonn. Úthlutunin var tilkynnt Ísafjarðarbæ með bréfi, dags. 21. desember 2011.
    Hinn 6. júlí 2012 tilkynnti Fiskistofa útgerðum á Flateyri í Ísafjarðarbæ ákvarðanir sínar um úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa eða höfnun umsókna um úthlutun. Engin ákvörðun var send kæranda, Sjávargæðum ehf. um það efni. Kærandi óskaði þá eftir upplýsingum frá Fiskistofu um ástæður þess að engin ákvörðun hafði borist honum og fékk þær upplýsingar frá Fiskistofu að engin umsókn hafi borist stofnuninni um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Garðars ÍS-22 (2494). Með bréfum til Fiskistofu, dags. 11. og 17. júlí 2012, óskaði kærandi eftir leiðréttingu á úthlutuninni og að úthlutað yrði byggðakvóta til bátsins Garðars ÍS-22 (2494).
    Með bréfi, dags. 19. júlí 2012, tók Fiskistofa formlega ákvörðum um mál kæranda og tilkynnti kæranda að hafnað væri framangreindri beiðni hans. Í umræddri ákvörðun Fiskistofu segir m.a. að í 1. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012, komi fram að Fiskistofa annist úthlutun aflamarks, sem komi í hlut einstakra byggðarlaga til fiskiskipa. Einnig sé þar gerð grein fyrir málsmeðferð við afgreiðslu umsókna, m.a. komi þar fram að stofnunin skuli auglýsa eftir umsóknum útgerða í a.m.k. tveimur dagblöðum og á vefsíðu Fiskistofu: www.fiskistofa.is. Í umsóknum skuli koma fram upplýsingar sem Fiskistofa ákveður. Þá komi þar fram að Fiskistofa annist mat og úrvinnslu umsókna og skuli svara öllum umsóknum svo fljótt sem unnt er. Af ákvæði 1. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 1182/2011 megi leiða að það sé ófrávíkjanlegt skilyrði úthlutunar byggðakvóta að aðili hafi lagt inn umsókn þess efnis. Þar sem engin umsókn hafi borist Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta til bátsins Garðars ÍS-22 (2494) taldi Fiskistofa að skilyrði reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til bátsins væru ekki uppfyllt í máli þessu.
    Þá kom fram í ákvörðun Fiskistofu að hún væri kæranleg til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindri tilkynningu um að ekki yrði úthlutað byggðakvóta til bátsins Garðars ÍS-22 (2494).


Málsástæður í stjórnsýslukæru o.fl.

    Með stjórnsýslukæru, dags. 19. júlí 2012, sem barst ráðuneytinu 20. sama mánaðar, tilkynnti Sigurður H. Garðarsson f.h. Sjávargæða ehf. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu að kærð væri framangreind ákvörðun Fiskistofu um að ekki verði úthlutað byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Garðars ÍS-22 (2494).
    Í stjórnsýslukærunni segir m.a. að við úthlutun Fiskistofu á byggðakvóta Flateyrar í Ísafjarðarbæ þann 6. júlí 2012 hafi komið í ljós að ekki hafi verið úthlutað byggðakvóta til bátsins Garðars ÍS-22 (2494). Kærandi hafi fengið þær upplýsingar hjá starfsmanni Fiskistofu að ástæðan væri sú að ekki hafi borist umsókn um byggðakvóta frá félaginu. Kærandi telji víst að sótt hafi verið um byggðakvóta fyrir bátinn með rafrænum hætti þann 6. febrúar 2012, og einnig með símbréfi þann 28. febrúar 2012, og vísar um það til tiltekins skjals. Umrætt símbréf hafi verið sent á tilteknum tíma í tiltekið faxnúmer Fiskistofu. Þá hafi kærandi rætt við starfsmann Fiskistofu úr farsíma eftir að hafa sent símbréfið og í því samtali hafi verið staðfest að umsókn hafi borist og myndi fara til úrvinnslu hjá stofnuninni. Þar sem ekki hafi fengist staðfesting frá Fiskistofu um að umrætt símbréf hafi borist stofnuninni, sé hér með kærð framangreind úthlutun byggðakvóta á Flateyri í Ísafjarðarbæ og þess krafist að úthlutað verði byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Garðars ÍS-22 (2494).
    Eftirtalin gögn fylgdu stjórnsýslukærunni: 1) Tölvubréf kæranda og Fiskistofu vegna málsins, 2) ljósrit af umsókn kæranda, dags. 6. febrúar 2012, o.fl.
    Með bréfi, dags. 23. júlí 2012, óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu um málið, staðfestu afriti af hinni kærðu ákvörðun auk annarra gagna sem Fiskistofa kynni að hafa um málið.
    Í umsögn Fiskistofu, dags. 3. ágúst 2012, segir m.a. að í bréfi Fiskistofu til kæranda, dags. 19. júlí 2012, hafi verið tekið fram að af ákvæði 1. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012, megi leiða að það sé ófrávíkjanlegt skilyrði úthlutunar byggðakvóta að aðili hafi lagt inn umsókn þess efnis. Engin umsókn um úthlutun byggðakvóta fyrir Garðar ÍS-22 (2494) hafi borist Fiskistofu. Engar upplýsingar sé að finna í skrá yfir móttekin símbréf til Fiskistofu eða í atburðaskrá yfir póstflutninga í póstþjóni stofnunarinnar um að umrædd umsókn um úthlutun byggðakvóta til Garðars ÍS-22 (2494) hafi borist Fiskistofu. Þá gefi yfirlit það sem kærandi leggi fram með stjórnsýslukæru yfir símnotkun aðeins til kynna að hringt hafi verið í faxnúmer stofnunarinnar en hins vegar ekki hvort eða hvaða símbréf hafi verið sent í umrætt sinn. Að mati Fiskistofu megi leiða af ákvæði 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar að það sé ófrávíkjanlegt skilyrði úthlutunar byggðakvóta að aðili hafi lagt inn umsókn þess efnis. Þar sem engin umsókn hafi borist Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta til bátsins Garðars ÍS-22 (2494) samkvæmt gögnum og upplýsingum stofnunarinnar telji Fiskistofa að skilyrði reglugerðar nr. 1182/2011 um úthlutun byggðakvóta til skipsins séu ekki uppfyllt. Fiskistofa bendi einnig á að ákvörðun um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa sé ekki matskennd ákvörðun. Í reglugerð nr. 1182/2011 séu ákvörðuð þau skilyrði sem verði að vera fyrir hendi til að ákvörðun um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa verði tekin. Að öðru leyti sé vísað til ákvörðunar Fiskistofu, dags. 19. júlí 2012, og ekki talið tilefni til frekari athugasemda.
    Umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins fylgdi staðfest afrit af hinni kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 19. júlí 2012.
    Einnig sendi Fiskistofa umsögn, dags. 3. september 2012, en þar segir m.a. að ekki verði séð að umsókn vegna bátsins Garðars ÍS-22 (2494) hafi borist Fiskistofu. Fiskistofa telji hins vegar ekki ástæðu til að draga í efa staðhæfingar kæranda þess efnis að umsókn um byggðakvóta hafi verið send þann 6. febrúar 2012, þótt hún finnist ekki í gögnum Fiskistofu. Til þess geti verið nokkrar tæknilegar ástæður, s.s. bilun í faxtæki.
    Með bréfi, dags. 28. september 2012, sendi ráðuneytið kæranda ljósrit af framangreindri umsögn Fiskistofu, dags. 3. september 2012, og veitti honum kost á að gera athugasemdir við hana.
    Með bréfi, dags. 8. október 2012, bárust ráðuneytinu athugasemdir frá kæranda um framangreinda umsögn Fiskistofu, dags. 3. september 2012.
    Með bréfi, dags. 7. nóvember 2012, bárust ráðuneytinu frekari upplýsingar frá Fiskistofu í tilefni af símtali vegna málsins, en í bréfinu segir m.a. að umsókn, dags. 6. febrúar 2012, sem hafi fylgt stjórnsýslukærunni hafi ekki borist Fiskistofu eins og áður hafi komið fram og ekki heldur símbréf með umsókninni frá 28. febrúar 2012. Þá er þar áréttuð afstaða Fiskistofu til málsins sem kom fram í bréfi stofnunarinnar, dags. 3. september 2012, og vísað til tiltekins skjals sem lagt var fram í málinu.
    Með úrskurði atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, dags. 4. desember 2012, var stjórnsýslukærunni vísað frá á þeim forsendum að engin umsókn hafi borist Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta til bátsins Garðars ÍS-22 (2494) og að engin ákvörðun hafi verið tekin af Fiskistofu um kröfur kæranda í málinu.
    Með tölvubréfi Fiskistofu til ráðuneytisins frá 18. desember 2012 upplýsti Fiskistofa hins vegar að stofnunin hefði tekið formlega ákvörðun í málinu, með bréfi, dags. 19. júlí 2012, en ljósrit af ákvörðuninni fylgdi framangreindu tölvubréfi Fiskstofu. Einnig segir í tölvubréfi Fiskistofu að stofnunin hafi sent ráðuneytinu umsögn um málið, dags. 3. ágúst 2012, þar sem hafi komið fram afstaða stofnuninnar til stjórnsýslukærunnar, auk þess sem framangreind umsögn hafi fylgt með. Þá segir í tölvubréfi Fiskistofu að fyrir mistök hafi annar starfsmaður Fiskistofu einnig svarað erindi ráðuneytisins með bréfi, dags. 3. september 2012, og virðist sem einungis hafi verið byggt á þeirri umsögn í úrskurði ráðuneytisins.
    Með bréfi, dags. 20. desember 2012, sendi ráðuneytið kæranda tilkynningu um að það hefði ákveðið að endurupptaka framangreindan úrskurð ráðuneytisins, dags. 4. desember 2012,  með vísan til 1. tl. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Einnig sendi ráðuneytið kæranda ljósrit af umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins, dags. 3. ágúst 2012, og veitti honum kost á að gera athugasemdir við umsögnina, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Frestur til þess var veittur til og með mánudagsins 7. janúar 2013.
    Svarbréf, dags. 7. janúar 2013, barst ráðuneytinu frá Megin lögmannsstofu, Birni Jóhannessyni, hrl. f.h. kæranda, en þar segir m.a. að líta verði svo á að umsögn Fiskistofu, dags. 3. september 2012, hafi verið breyting á fyrri umsögn stofnunarinnar, dags. 3. ágúst sama ár. Umsögnin frá 3. september 2012 hafi ekki verið afturkölluð og sé auk þess nýrri en sú sem hafi verið send 3. ágúst 2012. Framangreindar umsagnir séu gefnar út af sama stjórnvaldi og beri að líta svo á að stofnunin sé eitt stjórnvald en ekki einstaka starfsmenn viðkomandi stofnunar. Ekki verði betur séð en að við úrlausn málsins beri eingöngu að líta til þeirrar umsagnar sem hafi verið síðar gefin af viðkomandi stjórnvaldi enda feli hún í sér breytingu á fyrri umsögn. Samkvæmt framansögðu verði ekki séð að umsögn Fiskistofu, dags. 3. ágúst 2012, hafi nokkra þýðingu fyrir úrlausn málsins og sé ráðuneytinu ekki heimilt að taka mið af þeirri umsögn við úrlausn málsins. Einnig segir þar að vegna framangreinds bréfs frá Fiskistofu, dags. 3. ágúst 2012, skuli það ítrekað að kærandi segist vera fullviss um að hann hafi sent umsókn um byggðakvóta til Fiskistofu, bæði með rafrænum hætti þann 6. febrúar 2012 og einnig með símbréfi þann 28. febrúar 2012, auk þess sem hann hafi fengið það staðfest frá starfsmanni Fiskistofu í símtali að umsóknin hafi borist stofnuninni. Sé að öðru leyti vísað til fyrirliggjandi gagna málsins, m.a. þeirra gagna sem fylgdu stjórnsýslukæru kæranda frá 19. júlí 2012 svo og þess rökstuðnings sem hafi komið fram af hans hálfu fyrr í málinu. Kærandi hafi þegar komið á framfæri sjónarmiðum sínum til ráðuneytisins við umsögn Fiskistofu, dags. 3. september 2012, en það hafi verið gert með bréfi, dags. 8. október 2012, sbr. meðfylgjandi ljósrit.
    Málið var þá aftur tekið til úrskurðar af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
    

Rökstuðningur

I.    Með bréfi, dags. 19. júlí 2012, sem barst ráðuneytinu 20. sama mánaðar, var stjórnsýslukæra í máli þessu móttekin af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, sem fór með málefni samkvæmt lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Með forsetaúrskurði nr. 99/2012, um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti, voru sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og hluti efnahags- og viðskiptaráðuneytis sameinuð í nýtt ráðuneyti, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, sbr. og forsetaúrskurður nr. 100/2012, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, og tóku úrskurðirnir gildi 1. september 2012. Úrskurður í máli þessu er því kveðinn upp af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem nú fer með málefni samkvæmt lögum nr. 116/2006 og tók við eldri málum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins samkvæmt þeim lögum.

II.    Um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 gildir ákvæði 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Í 5. mgr. greinarinnar er ráðherra falið að setja með reglugerð almenn skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda til fiskiskipa innan einstakra byggðarlaga. Skulu þau skilyrði m.a. varða skráningarstað, skráningartíma, eignarhald, skiptingu milli fiskiskipa, lágmarksverð, tryggingar fyrir greiðslum og framkvæmd úthlutunar.
    Á grundvelli framangreinds ákvæðis hefur ráðherra sett reglugerð nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012. Í 1. gr. reglugerðarinnar eru talin upp almenn skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2011/2012 en þau eru: a) að skip hafi haft leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, b) að skip hafi verið skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. desember 2011 og c) að skip hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. desember 2011. Miðað skal við lögheimili einstaklinga samkvæmt þjóðskrá og heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.
    Einnig eru í 4. gr. reglugerðarinnar viðmiðanir um úthlutun aflaheimilda til einstakra fiskiskipa en samkvæmt ákvæðinu er gert ráð fyrir að úthlutun aflaheimilda skuli fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla almenn skilyrði reglugerðarinnar og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið hefur staðfest, eftir því sem við á, og skuli úthlutað hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2010 til 31. ágúst 2011. Komi minna en 100 þorskígildiskíló í hlut fiskiskips samkvæmt framangreindum reglum fellur niður hlutur þess og skiptist hlutur þess milli annarra fiskiskipa frá sama byggðarlagi sem uppfylla skilyrði fyrir úthlutun í samræmi við skiptingu samkvæmt úthlutunarreglum. Ennfremur koma fram í ákvæðinu nokkrar reglur um úthlutun byggðakvóta miðað við tiltekin skilyrði o.fl.
    Þá koma fram í reglugerðinni ákvæði um skyldu fiskiskipa til að landa afla til vinnslu í byggðarlagi, sbr. 6. gr. o.fl.
    Sett hafa verið sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í Ísafjarðarbæ, m.a. á Flateyri fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 samkvæmt framangreindu ákvæði með auglýsingu (VI) nr. 534/2012, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta, sem ekki hafa áhrif á niðurstöðu þessa máls.
    Um skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa á Flateyri í Ísafjarðarbæ fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 fer því eftir 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, ákvæðum reglugerðar nr. 1182/2011 og auglýsingu (VI) nr. 534/2012.
    Í 1. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012, kemur fram að Fiskistofa annist úthlutun aflamarks, sem kemur í hlut einstakra byggðarlaga, til fiskiskipa og skuli auglýsa eftir umsóknum útgerða í a.m.k. tveimur dagblöðum og á vefsíðu Fiskstofu: www.fiskistofa.is. Í umsóknum skulu koma fram upplýsingar sem Fiskistofa ákveður og skal umsóknum skilað á því formi sem stofnunin ákveður. Umsóknarfrestur skal vera tvær vikur. Þá kemur þar fram að Fiskistofa annist mat og úrvinnslu umsókna og skuli svara öllum umsóknum svo fljótt sem unnt er.
    Eins og gerð hefur verið grein fyrir hér að framan auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta á Flateyri í Ísafjarðarbæ fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 með auglýsingu, dags. 21. júní 2012, en umsóknarfrestur samkvæmt auglýsingunni var tvær vikur eða til og með 5. júlí 2012, sbr. framangreint ákvæði 5. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012. Samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins hafði Fiskistofu að þeim fresti liðnum ekki borist umsókn um úthlutun byggðakvóta til bátsins Garðars ÍS-22 (2494) og því var ekki tekið tillit til bátsins við úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til fiskiskipa á Flateyri í Ísafjarðarbæ.
    Í tilefni af því sem kemur fram í bréfi lögmanns kæranda, Björns Jóhannessonar, hrl. f.h. kæranda til ráðuneytisins, dags. 7. janúar 2013, vill ráðuneytið árétta að umsagnir Fiskistofu í máli þessu eru ekki lögbundnar en samkvæmt því eru umsagnirnar ekki bindandi fyrir ráðuneytið við úrlausn málsins heldur einungis til leiðbeininga og upplýsinga áður en ráðuneytið tekur afstöðu til stjórnsýslukærunnar.
     Í stjórnsýslukæru, dags. 19. júlí 2012, er byggt á því að umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta fyrir þann bát hafi verið send með rafrænum hætti þann 6. febrúar 2012, og einnig með símbréfi þann 28. febrúar 2012. Í umsögnum Fiskistofu, dags. 3. ágúst, 3. september og 7. nóvember 2012, kemur hins vegar fram að engin umsókn hafi borist stofnuninni frá kæranda fyrir lok umsóknarfrests. Þá fellst ráðuneytið á það með Fiskistofu, sem kemur fram í bréfi stofnunarinnar, dags. 3. ágúst 2012, að yfirlit sem kærandi hefur lagt fram gefi aðeins til kynna að hringt hafi verið í faxnúmer Fiskistofu en ekki hvort eða hvaða símbréf hafi verið sent í umrætt sinn.
    Engar frekari upplýsingar hafa komið fram í málinu um að umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Garðars ÍS-22 (2494) hafi verið send Fiskistofu með rafrænum hætti þann 6. febrúar 2012 eða með símbréfi 28. febrúar 2012, eins og kemur fram í stjórnsýslukæru. Einnig er umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta til bátsins Garðars ÍS-22 (2494), dags. 6. febrúar 2012, sem barst ráðuneytinu með stjórnsýslukæru þann 20. júlí 2012, of seint fram komin þar sem framangreindum umsóknarfresti er lokið og verður úthlutun byggðakvóta til bátsins því ekki byggð á umræddri umsókn.
    Þá er það mat ráðuneytisins að aðrar málsástæður sem koma fram í stjórnsýslukærunni og öðrum gögnum málsins geti ekki haft þýðingu fyrir niðurstöðu þessa máls.
    Með vísan til framanritaðs er það niðurstaða ráðuneytisins að ekki séu skilyrði fyrir að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 19. júlí 2012, um að ekki skuli úthlutað byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Garðars ÍS-22 (2494) en samkvæmt því verður ákvörðunin staðfest.
    Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær er að rekja til mikilla anna í ráðuneytinu.


Úrskurður

    Ráðuneytið staðfestir ákvörðun Fiskistofu, dags. 19. júlí 2012, um að ekki skuli úthlutað byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Garðars ÍS-22, skipaskrárnúmer 2494.

Fyrir hönd ráðherra
Ingvi Már Pálsson.
Sigriður Norðmann.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum