Hoppa yfir valmynd
15. mars 2013 Utanríkisráðuneytið

Ráðherra fundar með yfirmanni kínversku Heimskautastofnunarinnar

Össur og Huigen Yang.

Kínverjar telja mögulegt að innan sjö ára, eða árið 2020, geti Miðleiðin yfir Norðurpólinn frá Kyrrahafi til Norður-Atlantshafsins orðið farvegur vöruflutninga frá Kína til Evrópu sem svarar til 700 milljarða Bandaríkjadala. Það jafngildir 10% af vöruflutningum þeirra þangað. Þá áætla þeir að Miðleiðin verði fær allt að fjóra mánuði á ári.

“Það skiptir Ísland gríðarmiklu máli að Kínverjar skuli sammála okkur um gildi Miðleiðarinnar, því hún gæti bæði haft mjög mikil efnahagsleg áhrif á Íslandi, en ekki síður stóraukið geópólitiskt vægi Íslands á nýjan leik, bæði gagnvart Evrópu, Ameríku og Asíu. Við höfum stöðugt haldið því fram að þessi leið sé heppilegust vegna ýmissa ástæðna, ekki síst strauma og ísþykktar, og það hefur mjög mikla þýðingu fyrir Ísland að stórveldið Kína sé á sama máli” segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra.

Þetta kom fram á fundi Össurar Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, með Huigen Yang, yfirmanni Kínversku Heimskautastofnunarinnar, sem staðsett er í Shanghai. Þeir ræddu m.a. þá miklu möguleika sem felast í siglingum yfir Norðurpól í kjölfar bráðnunar ísþekju Norður-Íshafsins. Hún styttir leiðina milli hafna við Kyrrahaf og Atlantshaf um allt að 40%. Bæði Íslendingar og Kínverjar eru sammála um að Miðleiðin sé heppilegasta leiðin milli meginlandanna, en með notkun hennar geta opnast miklir möguleikar á alþjóðlegri vöruhöfn á Íslandi.

Kínverski rannsóknarísbrjóturinn Snjódrekinn, sem heimsótti Ísland sl. sumar, sigldi einmitt Miðleiðina til baka. Huigen Yang telur að árið 2020 muni leiðin verða fær 4 mánuði á ári, þó hugsanlega þurfi ísbrjóta til að opna hana. Fram kom, að Kínverjar undirbúa nú smíði nýs  rannsóknarísbrjóts  sem hannaður er  af Finnum.

Össur og Huigen Yang ræddu einnig  áform um stofnun sameiginlegrar rannsóknarstofnunar um norðurljós hér á landi, en samningur um samstarf Íslands og Kína í norðurslóðarannsóknum var undirritaður í heimsókn Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína á síðasta ári.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum