Hoppa yfir valmynd
20. mars 2013 Utanríkisráðuneytið

Svíþjóð, samkeppnishæfni og fríverslun

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra skrifar:

Tvennt stendur upp úr nýafstaðinni Íslandsheimsókn Carls Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar. Í fyrsta lagi sagði Bildt okkur að Svíar væru á einu máli um að aðild þeirra að Evrópusambandinu hefði verið þeim til hagsbóta. Óumdeilt er að aðild hefur styrkt sænskt efnahagslíf. Útflutningshagkerfið Svíþjóð hefur traustan aðgang að Evrópu og öðrum mörkuðum sem ESB hefur samið um og er að semja um fríverslun við, þ. á m. við Bandaríkin. Evrópa snýst um samkeppnishæfni og fríverslun í heimi sem breytist hratt. Þannig tryggjum við velferð og atvinnu.

Auðvitað er velgengni Svíþjóðar ekki einungis ESB að þakka, sagði Bildt. En án aðildar hefði brekkan verið brattari, urðin grýttari. Á fundi í troðfullu Norræna húsinu með Sjálfstæðum Evrópumönnum færði hann sterk rök fyrir því hversu vel evran hentaði Svíum. Sænsk fyrirtæki vilja stöðugleika en ekki gengissveiflur. Skammtímafjármagn sem flætt hefur til Svíþjóðar er skammgóður vermir og getur aukið óstöðugleika með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. "Ísland þekkir það," bætti Bildt við, og ekki laust við að örlaði á svörtum húmor. Bildt lýsti hvernig vandræði vissra evruríkja væri agaleysi þeirra sjálfra að kenna, en ekki evrunni. Í öðru lagi rifjaði Bildt upp að í aðildarviðræðum Svía hefði stuðningur við aðild minnkað umtalsvert (fór niður í 26% ef mér ekki skjöplast). Það var fyrst og fremst vegna þess að á þeim tíma var fókusinn á ágreiningsmálunum. Þegar aðildarsamningur lá fyrir lögðu Svíar hins vegar blákalt hagsmunamat á kosti og galla aðildar - og niðurstaðan var meirihluti með aðild.

Bildt hefur síðastliðin sjö ár setið sem utanríkisráðherra í ráðherraráði ESB og sagði Svíþjóð á þeim tíma aldrei hafa orðið undir í ákvörðunum. "Við tölum okkur niður á sameiginlega niðurstöðu. Þannig virkar Evrópusamvinnan." Um 73% Svía skilgreina sig nú sem Evrópubúa. Aðeins gamli kommúnistaflokkurinn og nýi hægri öfgaflokkurinn eru æstir á móti Evrópu.

Ég er ekki frá því að Carl Bildt sé minn uppáhalds hægri maður - af þeim fjölmörgu sem koma til greina!


Grein utanríkisráðherra í Fréttablaðinu 20. mars 2013.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum