Hoppa yfir valmynd
16. apríl 2013 Utanríkisráðuneytið

Skattlagning á banka fyrir skuldara

Össur Skarphéðinsson skrifar:

Stjórnarmeirihlutinn á Alþingi bjó til tvenns konar tæki sem skapa ríkinu afar sterka stöðu í nauðasamningum við kröfuhafa föllnu bankanna. Þau fólust í framlengingu gjaldeyrishafta sem koma í veg fyrir að kröfuhafar geti farið með gjaldeyri út úr landinu. Hitt tækið er samþykkt Alþingis um að gjaldeyriseign búanna færi undir höftin. Athyglisvert var að hvorki Sjálfstæðisflokkur né Framsókn treystu sér til að styðja þessi lög í fyrstu atrennu.

Ríkisstjórnin ætlaði að nota þetta svigrúm, sem getur a.m.k. orðið frá 100-350 milljörðum, ef 200 milljarða krónueign bankanna er talin með, til að eyða kvikum krónum og lækka skuldir ríkisins um allt að 20%. Miklu skiptir að í kjölfarið yrði þá tiltölulega fljótt hægt að afnema gjaldeyrishöftin - jafnvel innan árs frá lokum samninga. Þar með væri rutt úr vegi helstu hindrun til að Ísland gæti farið beint inn í ERM II þegar aðild að ESB yrði samþykkt. Um leið væri krónan komin í skjól og drægi stórlega úr áhrifum verðtryggingar.

Lokun á nauðasamningum gæti hins vegar tekið langan tíma. Í því ljósi gæti verið innistæðulítið að lofa skuldurum skjótri úrlausn. Það gera hins vegar Sigmundur Davíð og Framsóknarflokkurinn. Ég er hins vegar efins um að það sé hægt gegnum nauðasamninga að skapa nógu mikið svigrúm nógu fljótt til að geta staðið við loforðin sem Framsóknarflokkurinn og Sigmundur hafa gefið. Ég tel líka að aðferð hans kalli fram mikla verðbólgu sem mun éta upp ávinning skuldaranna af þessari einskiptisaðgerð.

Skattleggjum bankagróðann

Þess vegna vil ég fara aðra leið. Hún felst í tvennu. Annars vegar að skattleggja tímabundið ofsagróða bankanna. Þeir hafa frá upp hafi haft hagnað upp á 260 milljarða, og bara á síðasta ári var hann 66 milljarðar. Bankarnir eru ýmist í eigu ríkisins eða kröfuhafa. Ég vil með lögum láta þá borga 15 milljarða árlegan skatt á ofsagróða sinn í fimm ár. Sömuleiðis vil ég að sérstakur skattur upp á 0,1285% af öllum skuldum fjármálafyrirtækja verði líka látinn ná yfir fjármálafyrirtæki í slitameðferð. Það gæfi tekjur upp á um 13 milljarða á ári. Næði þetta fram að ganga gæti þessi tvíþætta skattlagning á bankana skapað rými upp á 140 milljarða.

Þetta gæti verið til ráðstöfunar til að fjármagna aðgerðir til að rétta hlut þeirra sem fóru verst út úr hruninu. Í kjölfarið vil ég svo nota svigrúmið sem skapast við nauðasamninga til að greiða niður skuldir ríkisins, lækka þær um 20%, og afnema gjaldeyrishöftin sem fyrst í kjölfarið. Um þetta hljótum við Sigmundur að geta verið sammála. Þetta nær markmiðum okkar beggja um lausn fyrir illa stadda skuldara frá bóluárunum fyrir hrun, lækkar skuldir ríkisins um 20% og gerir okkur kleift að afnema gjaldeyrishöftin.


Greinin birtist í Fréttablaðinu 16. apríl 2013.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum