Hoppa yfir valmynd
23. maí 2013 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á smjöri og ostum.

Með vísan til 65. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og með vísan til reglugerðar nr. 473/2013, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á smjöri og ostum fyrir tímabilið 1. júlí 2013 til 30. júní 2014. 

 

Tollskrárnr: Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
a)

kg % kr./kg.
0405.xxxx Smjör og önnur fita 01.07.13 - 30.06.14 53.000 0 359






b) Ostur og ystingur:
119.000

0406.1011 Skyr með viðbættum sykri eða sætiefni 01.07.13 - 30.06.14
0 255
0406.1019 Annað skyr 01.07.13 - 30.06.14
0 255
0406.1090 Annað 01.07.13 - 30.06.14
0 255
0406.2000 Hvers konar rifinn eða mulinn ostur 01.07.13 - 30.06.14
0 255
0406.3000 Fullunninn ostur, órifinn eða ómulinn 01.07.13 - 30.06.14
0 191
0406.4000 Gráðostur 01.07.13 - 30.06.14
0 293
0406.9000 Annar ostur 01.07.13 - 30.06.14
0 286

 

 

Úthlutun er ekki framseljanleg. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði 10. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt reglugerð nr. 448/2012, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vörunnar. Tilboð skulu ráða úthlutun.

 

Skriflegar umsóknir skulu berast  til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, að Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, bréflega eða á [email protected], fyrir kl. 15:00 föstudaginn 31. maí 2013.

 

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. maí 2013

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum