Hoppa yfir valmynd
30. ágúst 2013 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir janúar-júlí 2013

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu sjö mánuði ársins 2013 liggur nú fyrir. Staða handbærs fjár frá rekstri batnaði miðað við sama tímabil 2012 og var neikvætt um tæpa 22 ma.kr. en var neikvætt um 31,8 ma.kr. 2012.

Tekjur jukust um 13,7 ma.kr. milli ára og gjöld um 8,7 ma.kr. Viðskiptahreyfingar höfðu neikvæð áhrif á handbært fé um 583 m.kr. á móti neikvæðum áhrifum 2012 um 5,4 ma.kr.

Þessi útkoma er betri en áætlað var þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé yrði neikvætt um 34,0 ma.kr. sem skýrist að mestu með því að dreifing útgjalda innan ársins reyndist önnur en gert hafði verið ráð fyrir.

Greiðsluafkoma ríkissjóðs fyrir janúar-júlí 2013

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum