Hoppa yfir valmynd
3. september 2013 Utanríkisráðuneytið

Áríðandi að alþjóðasamfélagið bregðist við vegna Sýrlands

Utanríkisráðherrar NB8 ríkjanna.

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra tók þátt í fundi utanríkisráðherra
Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í Visby á Gotlandi í dag. Málefni
Sýrlands voru helsta umfjöllunarefni fundarins. Ráðherrarnir lýstu þungum
áhyggjum vegna notkunar efnavopna í Sýrlandi, fordæmdu beitingu slíkra
vopna og lögðu þunga áherslu á að brugðist verði við alþjóðlega. Þeir sögðu
það mikil vonbrigði að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi ekki tekið á
málefnum Sýrlands.

Í sameiginlegri yfirlýsingu ráðherranna er ákall til öryggisráðsins um að það lýsi því skýrt og skorinort yfir að notkun efnavopna sé alvarlegt brot á alþjóðalögum sem beri að harma, grípa verði til viðeigandi aðgerða og þeir aðilar sem stóðu fyrir efnavopnaárás sæti
ábyrgð. Þessi yfirlýsing ráðherrana hefur verið send utanrikisráðherra Ástralíu sem nú gegnir formennsku í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og verður einnig send öllum ríkjunum sem sæti eiga í ráðinu.

Utanríkisráðherra segir að hinn eðlilegi ferill viðbragða við brotum af því
tagi sem hér um ræðir sé að um þau sé fjallað á vettvangi dómstóla.
Alþjóðasamfélagið hafi slík úrræði og því hafi Ísland stutt að öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna vísi málefnum Sýrlands til Alþjóðasakamáladómstólsins.

"Við teljum áríðandi að öryggisráðið fjalli um niðurstöður rannsóknarteymis
Sameinuðu þjóðanna, sem og aðrar upplýsingar sem geta varpað ljósi á það
hver bar ábyrgð á árásinni" segir utanríkisráðherra.

Utanríkisráðherra segir að einstök ríki öryggisráðsins verða jafnframt að
víkja til hliðar pólitískum hagsmunum og láta íbúa Sýrlands njóta þess
skjóls sem Sameinuðu þjóðirnar geta veitt og eiga að veita. "Beiting
efnavopna er ólögleg aðgerð hvar og hvenær sem er og þær hörmungar sem
dunið hafa yfir borgara Sýrlands verður að stöðva."

Á fundinum fjölluðu ráðherrarnir einnig um þróun mála í Egyptalandi og
friðarumleitanir í deilu Ísraels og Palestínu. Víðtækt samstarf
Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í utanríkismálum voru til umræðu. Þá
ræddu ráðherrarnir samstarf við nágrannaríkin í austurhluta Evrópu og
lýstu stuðningi við markmið og framgang grannríkjasamstarfs
Evrópusambandsins.

Bréf ráðherranna og yfirlýsing um Sýrland

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum