Hoppa yfir valmynd
12. september 2013 Dómsmálaráðuneytið

Embætti héraðsdómara laust til umsóknar

Samkvæmt ákvæðum laga um dómstóla nr. 15/1998, auglýsir innanríkisráðuneytið laust til umsóknar embætti dómara sem ekki mun eiga fast sæti við tiltekinn dómstól, heldur sinna störfum við alla héraðsdómstólana eftir því sem honum kann að verða úthlutað málum við hvern þeirra í skjóli almennra heimilda dómstólaráðs. Dómstólaráð hefur ákveðið að starfsstöð héraðsdómarans verði við héraðsdóm Reykjaness, sbr. 15. gr. laga nr. 15/1998.

Miðað er við að skipað verði í embættið frá og með 3. nóvember 2013 eða hið fyrsta eftir að nefnd um hæfni dómara hefur lokið starfi sínu í samræmi við 4. gr. a, sbr. 3. mgr. 12. gr. laga um dómstóla nr. 15/1998 og reglur um störf dómnefndar sem fjallar um hæfni umsækjenda um dómaraembætti nr. 620/2010. Laun eru samkvæmt ákvörðun kjararáðs.

Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 12. gr. laga um dómstóla nr. 15/1998. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 620/2010 er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um 1) núverandi starf, 2) menntun og framhaldsmenntun, 3) reynslu af dómstörfum, 4) reynslu af lögmannsstörfum, 5) reynslu af stjórnsýslustörfum, 6) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 7) reynslu af stjórnun, 8) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 9) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 10) upplýsingar um andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 11) upplýsingar um tvo fyrrverandi/núverandi samstarfsmenn/yfirmenn sem geta veitt dómnefnd bæði munnlegar og skriflegar upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda, sbr. 5. mgr. 5. gr. reglna nr. 620/2010 og 12) aðrar upplýsingar sem varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skiptir fyrir störf héraðsdómara.

Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma í munnlega fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjanda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem héraðsdómari.

Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsækjendur gefi einnig upp netfang sem notað verður til að eiga samskipti við umsækjendur.

Umsóknir skulu berast innanríkisráðuneytinu, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík og á netfangið [email protected], eigi síðar en 27. september næstkomandi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.

 

Innanríkisráðuneytinu,

12. september 2013.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum