Hoppa yfir valmynd
2. október 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Fjárframlög til félags- og húsnæðismála aukast um 10,8%

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi ársins 2014 munu fjárframlög til verkefna velferðarráðuneytisins sem heyra undir félags- og húsnæðismálaráðherra aukast um tæpa 12 milljarða króna eða 10,8%. Mestu munar um aukna fjármuni inn í almannatryggingakerfið og Íbúðalánasjóð.

 Af einstökum málaflokkum eru þessar breytingar helstar:

  • Tekjuskerðingarhlutfall aldraðra og öryrkja lækkar um næstu áramót úr 45% niður í 38,35%.
  • Hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi hækka um 20.000 krónur á mánuði.
  • Íbúðalánasjóður fær á næsta ári 4,5 milljarða króna framlag til að mæta rekstrartapi og til að annast umsýslu með húsnæði í eigu sjóðsins.
  • Framlög til málefna barna aukast um 177 milljónir króna.
  • Útgjöld til umboðsmanns skuldara dragast saman um 229 milljónir króna.
  • Útgjöld til vinnumála dragast saman um 1.339 milljónir króna.

Á meðfylgjandi glærum má sjá nánar hvernig útgjöldin skiptast milli málaflokka og breytingu milli ára.

Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherraEygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir áherslur sínar koma skýrt fram í frumvarpinu: „Breytingar á skerðingarhlutfalli vegna tekna hjá öldruðum og öryrkjum sem verða um áramótin munu skila þeim umtalsverðri kjarabót. Viðbótin til málefna barna er einnig mikils verð og hækkun hámarksgreiðslu í fæðingarorlofi vonast ég líka til að þjóni tilgangi sínum til að jafna ábyrgð foreldra. Það lá alltaf fyrir að dregið yrði úr starfsemi umboðsmanns skuldara. Sama máli gegnir um framlög til tímabundinna vinnumarkaðsaðgerða, enda hefur þörfin fyrir slík úrræði minnkað til muna og atvinnuleysi á Íslandi er nú með því minnsta sem gerist á Vesturlöndum.“

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum