Hoppa yfir valmynd
3. október 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

EKKI MEIR – fræðsluerindi um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála

Tilgangurinn er að vekja fólk til enn frekari vitundar um mál af þessu tagi og mikilvægi þess að vera vakandi fyrir einelti og annarri óæskilegri hegðun.
EKKI MEIR – fræðsluerindi um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála
EKKI MEIR – fræðsluerindi um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála

Æskulýðsvettvangurinn (ÆV), sem er samstarfsvettvangur Ungmennafélags Íslands, Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi og Slysavarnafélagsins Landsbjargar, hefur frá haustinu 2012 staðið fyrir sextán fræðsluerindum um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála víðs vegar um landið. Markmiðið er að vekja fólk til enn frekari vitundar um mál af þessu tagi og mikilvægi þess að vera vakandi fyrir einelti og annarri óæskilegri hegðun.

Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur flytur fræðsluerindin, sem hún byggir á bók sinni EKKI MEIR. Bókin er leiðarvísir í aðgerðum gegn einelti fyrir starfsfólk skóla, íþrótta- og æskulýðsfélög, foreldra og börn. Útgefandi er Skólavefurinn ehf. Meðal efnisþátta eru: Staðarmenningin og starfsfólkið og  forvarnir gegn einelti á vinnustöðum, skólum og í félögum. Fjallað er um birtingamyndir eineltis og helstu orsakir, aðstæður og persónueinkenni þolenda og gerenda. Í fræðsluerindinu lýsir Kolbrún vinnuferli sem einkennist af markvissum og faglegum vinnubrögðum frá því að mál er tilkynnt og þar til því er lokað. Farið er yfir helstu ástæður þess að eineltismál koma upp og festa sig í sessi.

Næstu erindi:

10. okt. kl. 19.30 – 21.00 í Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, Reykjavík

16. okt. kl. 19.30 – 21.00 í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK, Holtavegi 28, Reykjavík.

22. okt. kl. 19.30 - 21.00 hjá Björgunarsveitinni Ársæli, Grandagarði 1, Reykjavík.

29. okt. kl. 19.30 – 21.00 í Stjörnuheimilinu við Ásgarð í Garðabæ.

6. nóv. kl. 19.30 – 21.00 í Smáranum, íþróttahúsi Breiðabliks, Dalsmára 5 í Kópavogi.

Á erindunum verður aðgerðaáætlun Æskulýðsvettvangsins gegn einelti og annarri óæskilegri hegðun dreift sem og eineltisveggspjaldi. Mennta- og menningarmálaráðuneytið styrkir verkefnið.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum