Hoppa yfir valmynd
4. október 2013 Matvælaráðuneytið

Starfshópur um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur sett af stað vinnu við samningu frumvarps um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða. Til að aðstoða við þá vinnu hefur hann sett á fót ráðgjafahóp, hann skipa: Karl Axelsson lögmaður, Lúðvík Bergvinsson lögmaður, Kristín Haraldsdóttir forstöðumaður Auðlindaréttarstofnunar lagadeildar HR, Arnór Snæbjörnsson lögfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og Helga Sigurrós Valgeirsdóttir aðstoðarmaður ráðherra, sem jafnframt mun stýra vinnu hópsins.

Hópnum er falið að vinna, „… með tillögu sáttanefndar sem starfaði á liðnu kjörtímabili um að samningsbundin réttindi um nýtingu aflaheimilda taki við af varanlegri úthlutun…“,  eins og segir í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Sáttanefndin svokallaða skilaði tillögum sínum til þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra haustið 2010. Hún var skipuð fulltrúum allra stjórnmálaflokka á Alþingi og helstu hagsmunaaðila. Megin niðurstaða mikils meirihluta nefndarinnar var sú að skýrt ákvæði um þjóðareign á náttúruauðlindum yrði sett í stjórnarskrána og samningar gerðir um nýtingu aflaheimilda. Með því væri því slegið föstu að auðlindinni sé ráðstafað af ríkinu í tiltekinn tíma, gegn gjaldi og um leið sé nýtingartíminn og ákvæði um framlengingu skýr til að tryggja fyrirsjáanleika í rekstri útgerðarfyrirtækja.

Á þessum grunni er markmiðið að ná niðurstöðu sem byggist á þeirri breiðu sátt ólíkra aðila sem náðist í starfi nefndarinnar. Fram komu ýmis sér sjónarmið um einstök atriði við útfærslu samningaleiðarinnar og verður leitast við að  gæta þeirra eftir því sem kostur er. Sá hópur sem hér er greint frá mun fjalla um samningahlutann; það er um réttinn til nýtingu aflaheimilda.

Það eru sameiginlegir hagsmunir allra að ná sátt um rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja á Íslandi; okkar mikilvægustu atvinnugrein. Tryggja þarf festu í rekstrarumhverfi fyrirtækja og möguleika til að stuðla að jákvæðum vexti þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem með beinum og óbeinum hætti eiga þar mikið undir. Samhliða þessu er unnið að útfærslu á gjaldtöku, með veiðigjöldum, fyrir nýtingu af auðlindinni. Samráð verður haft við hagsmunaaðila eftir því sem vinnunni vindur fram og Alþingi á vettvangi atvinnuveganefndar.  

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum