Hoppa yfir valmynd
7. október 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Undirritun samninga við ÍSÍ

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Lárus Rafn Blöndal forseti ÍSÍ undirrituðu fjóra samninga um fjárframlög.
Undirritun samninga við ÍSÍ
Undirritun samninga við ÍSÍ

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Lárus Rafn Blöndal forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands undirrituðu fjóra samninga um fjárframlög á fjárlögum 2013. Með samningunum eru samskipti ráðuneytisins við ÍSÍ formfest hvað fjármál varðar og einnig er orðið við almennum tilmælum Ríkisendurskoðunar um að gerðir séu samningar um fjárframlög á fjárlögum.  

Um er að ræða samning um rekstur ÍSÍ að fjárhæð 103,7 m.kr., stuðningur við starfsemi sérsambanda ÍSÍ að fjárhæð 70 m.kr., samningur um ferðasjóð íþróttafélaga að fjárhæð 70 m.kr. og samningur um afrekssjóð ÍSÍ að fjárhæð 55 m.kr. Samningarnir verða birtir á vef ráðuneytisins innan skamms.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum