Sækir ársfundi AGS, Alþjóðabankans og Ecofin
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, fer fyrir sendinefnd ráðuneytisins sem sækir dagana 11-13. október ársfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og Alþjóðabankans. Fundurinn er haldinn í Washington í Bandaríkjunum.
Á fundinum er fjallað um stöðu og þróun efnahagsmála á heimsvísu. Íslenska sendinefndin fundar m.a. með fjármálaráðherrum, fjármálastofnunum, matsfyrirtækjum og starfsfólki AGS.
Í framhaldi af fundinum í Washington fer fjármála- og efnahagsráðherra fyrir sendinefnd sem sækir ársfund ráðherra fjármála- og efnahagsmála í ríkjum Evrópusambandsins, Ecofin, og EFTA. Fundurinn er haldinn í Lúxemborg hinn 15. október.