Hoppa yfir valmynd
22. október 2013 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Samráðsfundur um málefni Kolgrafafjarðar

Frá fundi í Grundarfirði í dag.

Málefni Kolgrafafjarðar voru rædd á samráðsfundi tveggja ráðuneyta, viðkomandi stofnana og  heimamanna í Grundarfirði í dag. Á fundinum var farið yfir kosti varðandi fyrirbyggjandi aðgerðir til að koma í veg fyrir endurtekinn síldardauða í Kolgrafafirði í vetur auk þess sem drög að viðbragðsáætlun Umhverfisstofnunar voru kynnt.

Fundinn sátu fulltrúar umhverfis- og auðlindaráðuneytis, atvinnuvega- nýsköpunarráðuneytis, Umhverfisstofnunar, Hafrannsóknarstofnunar, Vegagerðarinnar, bæjarstjórnar Grundarfjarðar, Áhaldahúss Grundarfjarðar og Náttúrustofu Vesturlands auk heilbrigðisfulltrúans í Grundarfirði og ábúenda á Eiði í Kolgrafafirði.  Ýmsar hugmyndir voru ræddar, s.s. möguleikar á lokun fjarðarins, frekari opnun hans og fælingaraðgerðir af ýmsum toga. Er ljóst að verkefnið er óvenju vandasamt og margir óvissuþættir um árangur. Engar ákvarðanir um aðgerðir voru teknar á fundinum en stofnanir munu halda áfram vinnu við rannsóknir og mat á einstökum kostum.

Á fundinum kynnti fulltrúi Umhverfisstofnunar ennfremur drög að viðbragðsáætlun vegna hugsanlegs síldardauða í framtíðinni. Tekur áætlunin mið af lærdómi síðasta vetrar þar sem heimamenn voru í framlínu við björgun verðmæta og hreinsun fjörunnar.

Fyrr í dag áttu Sigurður Ingi Jóhannsson, umverfis- og auðlindaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra fund með ofangreindum stofnunum þar sem kostir varðandi fyrirbyggjandi aðgerðir voru reifaðir.

Að loknum fundi buðu ábúendur á Eiði fundargestum í skoðunarferð við fjöruna í Kolgrafafirði. Í Kolgrafafirði Að loknum fundi buðu ábúendur á Eiði fundargestum í skoðunarferð við fjöruna í Kolgrafafirði..


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum