Hoppa yfir valmynd
29. október 2013 Utanríkisráðuneytið

Formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni kynnt

Formennskubæklingurinn
Formennskuáætlun Íslands

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sat í dag þing Norðurlandaráðs og tók þátt í umræðu um ungt fólk og samkeppnishæfni á Norðurlöndunum. Þá kynnti forsætisráðherra formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni fyrir árið 2014 sem ber yfirskriftina „Gróska og lífskraftur“.

Í ræðu sinni fjallaði ráðherrann um þau verkefni sem Ísland hyggst setja á oddinn í formennskutíð sinni, líkt og norræna lífhagkerfið, norræna spilunarlistann og norrænu velferðarvaktina, auk þess að leggja aukna rækt við vestnorrænt samstarf. Þá mun á formennskuárinu fara fram endurskoðun á norðurskautsáætlun Norrænu Ráðherranefndarinnar og starfrækt verður sérstakt norrænt landamæraráð sem ætlað er að vinna áfram að afnámi stjórnsýsluhindrana á Norðurlöndunum.

Ræða forsætisráðherra um formennskuáætlunina
Formennskuáætlun Íslands (pdf)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum