Hoppa yfir valmynd
30. október 2013 Utanríkisráðuneytið

Nýr kafli í norrænu samstarfi á sviði utanríkis- og öryggismála

Mynd: Norska utanríkisráðuneytið/Kristin Enstad
Gunnar Bragi Sveinsson og Børge Brende

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra tók í dag þátt í fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna í Osló. Á fundinum ræddu ráðherrarnir samstarf ríkjanna á sviði utanríkismála og þau málefni sem eru efst á baugi í alþjóðasamstarfi.

Ráðherrarnir fjölluðu meðal annars um þátttöku Finna og Svía í loftrýmiseftirliti á Íslandi í febrúar 2014. Með þátttöku ríkjanna tveggja verður brotið blað í öryggis- og varnarmálastarfi Norðurlandanna og af því tilefni munu utanríkisráðherrar og varnarmálaráðherrar Norðurlandanna heimsækja Ísland í febrúar í boði utanríkisráðherra.

Sú þekking og reynsla sem skapast við undirbúning, skipulagningu og framkvæmd eftirlitsins gefur okkur tækifæri til að þróa norrænt samstarf enn frekar, segir utanríkisráðherra. Hann segir að öryggismál á norðurslóðum varði hagsmuni allra Norðurlandanna miklu. Svæðið sé friðsamlegt en sé horft til framtíðar þurfi að huga að nýjum áskorunum sem geti skapast vegna  vaxandi efnahagsumsvifa og umferðar á norðurslóðum. Vilji hinna Norðurlandanna  til að vinna með okkur að þessum málum undirstrikar að gagnkvæmir hagsmunir okkar felast í að tryggja viðbragðsgetu í þessum heimshluta ef eitthvað bjátar á. Þegar fjallað er um öryggi á norðurslóðum, þar með talið leit og björgun, verður ekki fram hjá því horft að herir ríkjanna gegna þar mikilvægu hlutverki, segir utanríkisráðherra.  

Á fundinum ræddu ráðherrarnir um samvinnu utanríkisþjónusta Norðurlandanna í húsnæðismálum. Skýr vilji er til að halda áfram á þeirri braut að ríkin sameinist um rekstur sendiráðahúsnæðis sem renni styrkari stoðum undir hagsmunarekstur þeirra á erlendum vettvangi.

Ráðherrarnir fjölluðu einnig um samstarf Norðurlandanna í friðargæsluverkefnum á vegum Sameinuðu þjóðanna, samstarf Evrópuríkja við nágrannaríki í austurhluta álfunnar og ræddu þróun mála í Mið-Austurlöndum.   

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum