Hoppa yfir valmynd
31. október 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Fyrstu niðurstöður úr samræmdum prófum 2013

Námsmatsstofnun hefur tekið saman fyrstu niðurstöður úr samræmdum könnunarprófum 2013 í 4., 7. og 10.bekk.

Námsmatsstofnun hefur tekið saman fyrstu niðurstöður úr samræmdum könnunarprófum 2013 í 4., 7. og 10. bekk og verða þær einnig birtar á vef Námsmatsstofnunar. Í kjölfarið vinnur stofnunin skýrslu um niðurstöðurnar. Í formála skýrslu um samræmd könnunarpróf 2012 segir um prófin og framkvæmd þeirra:

„Námsmatsstofnun sér um framkvæmd samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk samkvæmt reglugerð nr. 435/2009 og samningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið. 

Prófað er í þremur greinum í 10. bekk og tveimur í 4. og 7. bekk. Í 10. bekk er prófað í íslensku, ensku og stærðfræði en í 4. og 7. bekk er prófað í íslensku og stærðfræði. Undirbúningur prófanna hefst einu ári áður en próf eru lögð fyrir, með gerð prófáætlunar og prófaverkefna. Prófatriði og prófaverkefni eru samin af kennurum með reynslu af kennslu í 4., 7. og 10. bekk. Sér svarblöð fylgja öllum prófunum í 10. bekk, fyrra heftinu í stærðfræði og fyrra heftinu í íslensku í 7. bekk en í 4. bekk eru engin sér svarblöð. Þar sem engin svarblöð eru færa nemendur svör sín inn í prófheftið sjálft sem síðan er skilað til Námsmatsstofnunar. Í prófum þar sem svarblöð fylgja er prófið sjálft eign skólans þar sem nemandinn færir svör sín á svarblaðið og því einu er skilað til stofnunarinnar.

Vinna við nemendaskrár og skráningu nemenda í próf hefst ár hvert í mars og stendur yfir fram að prófdögum. Prófaverkefni eru forprófuð með aðstoð nemenda í grunnskólum. Upplýsingar um samningaferli og framkvæmd prófanna er að finna á vefsíðu Námsmatsstofnunar“.  

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum