Hoppa yfir valmynd
6. nóvember 2013 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Frestur til að tilnefna nýsköpunarverkefni í opinberri þjónustu og stjórnsýslu framlengdur

Nýsköpunarverðlaunin í opinberri þjónustu og stjórnsýslu verða haldin í þriðja sinn 24. janúar nk. Á síðustu tveimur árum hafa um 100 verkefni verið tilnefnd til nýsköpunarverðlaunanna.

Tvö verkefni hafa fengið verðlaunin auk þess sem átta önnur framúrskarandi verkefni hafa fengið sérstakar viðurkenningar. Allar ríkisstofnanir, ráðuneyti og sveitarfélög landsins geta tekið þátt og tilnefnt verkefni til nýsköpunarverðlaunanna.

Óskað er eftir tilnefningum til nýsköpunarverðlaunanna sem veitt verða í janúar 2014. Tilnefningar ásamt rökstuðningi skulu sendar á vefpóstfangið: [email protected]

Skilafrestur tilnefninga hefur verið framlengdur til 15. nóvember 2013.


Nánari upplýsingar um verðlaunin, skil á verkefnum og nýsköpun í opinberum rekstri

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum