Hoppa yfir valmynd
9. nóvember 2013 Forsætisráðuneytið

Ríkisstjórn Íslands styður Hrókinn og Kalak

Á fundi sínum í gær ákvað ríkisstjórn Íslands að styðja Skákfélagið Hrókinn og Vinafélag Íslands og Grænlands, Kalak, um tvær milljónir króna, eða sem nemur einni milljón króna til hvors félags. 

Hrókurinn og Kalak hafa í sameiningu unnið ómetanlegt starf í áranna rás til að treysta vináttu og samvinnu Íslands og Grænlands. Má þar nefna að Hrókurinn hefur skipulagt um 30 leiðangra til Grænlands á undanliðnum áratug og haldið þar fjölda viðburða og hátíða sem þúsundir Grænlendinga, ekki síst börn, hafa tekið þátt í og notið góðs af. Gefin hafa verið um tvö þúsund taflsett á austurströnd Grænlands og um þessar mundir er verið að afhenda 300 taflsett til barna í Nuuk. Þá hefur Hrókurinn aðstoðað við uppbyggingu skákfélaga, heimsótt leikskóla og athvörf fyrir börn og freistað þess að láta gott af sér leiða. 

Kalak hefur sömuleiðis unnið að því að treysta vináttubönd þjóðanna árum saman. Félagið hefur til að mynda boðið börnum frá þorpunum á austurströndinni til skemmri tíma dvalar á Íslandi þar sem þau hafa lært að synda, ganga í skóla og kynnst íslenskum jafnöldrum sínum. 

Síðla gærdags var ræðisskrifstofa Íslands á Grænlandi opnuð með formlegum hætti. Er opnunin í beinu samræmi við vestnorræna áherslu ríkisstjórnarinnar og til marks um aukin samskipti og samvinnu Íslands og Grænlands, en einnig vináttu sem félög á borð við Hrókinn og Kalak hafa fóstrað í gegnum tíðina. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra opnaði ræðisskrifstofuna í Nuuk og tilkynnti um ákvörðun ríkisstjórnarinnar af því tilefni.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum