Hoppa yfir valmynd
23. desember 2013 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Tvísköttunarsamningur við Bretland

Bendikt Jónsson sendiherra og David Gauke vararáðherra hjá breska fjármálaráðuneytinu undirrituðu samninginn
Bendikt Jónsson sendiherra og David Gauke vararáðherra hjá breska fjármálaráðuneytinu undirrituðu samninginn.

Undirritaður hefur verið nýr samningur milli Íslands og Bretland til að komast hjá tvísköttun á tekjur og söluhagnað.  Af hálfu Íslands undirritaði Benedikt Jónsson sendiherra samninginn en fyrir hönd Bretlands David Gauke, vararáðherra hjá breska fjármálaráðuneytinu.

Í nýjum samningi felst fyrst og fremst aðlögun að gildandi stefnu ríkjanna í tvísköttunarmálum og þeim breytingum sem orðið hafa á tvísköttunarfyrirmynd OECD frá því að núgildandi samningur var undirritaður 1991.
 
Nokkrar meginbreytingar er að finna í nýja samningnum. Í fyrsta lagi er tekinn upp afdráttarskattur á tilteknar tegundir þóknana sem ekki er að finna i eldri samningi. Í öðru lagi eru með samningnum tekin af öll tvímæli um að lífeyrissjóðir njóti ívilnana nýja samningsins. Í þriðja lagi var sett inn ákvæði sem heimilar skattlagningu eftirlauna í greiðsluríki.
 
Á næstu mánuðum munu stjórnvöld vinna að fullgildingu samningsins í báðum samningsríkjum. Vonast er til að samningurinn geti komið til framkvæmda 1. janúar 2015.

Nýr samningur milli Íslands og Bretlands til að komast hjá tvísköttun á tekjur og söluhagnað


 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum