Hoppa yfir valmynd
1. febrúar 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Listi yfir forstöðumenn 1. febrúar 2014

Listi yfir forstöðumenn skv. 2. mgr. 22. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 með síðari breytingum

Í 1. mgr. 22. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 með síðari breytingum eru taldir upp í 13 töluliðum þeir sem teljast embættismenn samkvæmt lögunum. Í 2. mgr. segir að ráðherra skeri úr því hvaða starfsmenn falli undir 13. tölulið þessarar greinar, þ.e. forstöðumenn ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja sem ekki eru taldir sérstaklega upp í 1. - 12. tölulið. Jafnframt segir að ráðherra skuli fyrir 1. febrúar ár hvert birta í Lögbirtingablaði lista yfir þá starfsmenn.

Listinn birtur fyrir 1. febrúar 2014 er svohljóðandi:

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

  • Ferðamálastjóri
  • Fiskistofustjóri
  • Forstjóri Byggðastofnunar
  • Forstjóri Einkaleyfastofunnar
  • Forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar
  • Forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
  • Forstjóri Matvælastofnunar
  • Forstjóri Samkeppniseftirlitsins
  • Forstjóri Veiðimálastofnunar
  • Forstöðumaður Skrifstofu rannsóknastofnana atvinnuveganna
  • Framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins
  • Orkumálastjóri

Fjármála- og efnahagsráðuneyti

  • Bankastjóri Seðlabanka Íslands
  • Fjársýslustjóri
  • Forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins
  • Forstjóri Bankasýslu ríkisins
  • Forstjóri Fjármálaeftirlitsins
  • Forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins
  • Forstjóri Ríkiskaupa
  • Forstöðumaður Fasteigna ríkissjóðs

Forsætisráðuneytið

  • Forstöðumaður Minjastofnunar Íslands
  • Forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Hagstofustjóri
  • Þjóðminjavörður

Innanríkisráðuneyti

  • Forstjóri Samgöngustofu
  • Forstjóri Landhelgisgæslu Íslands
  • Forstjóri Neytendastofu
  • Forstjóri Persónuverndar
  • Forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar
  • Forstjóri Vegagerðarinnar
  • Forstjóri Þjóðskrár Íslands
  • Rekstrarstjóri rannsóknarnefndar samgönguslysa

Mennta- og menningarmálaráðuneyti

  • Forstöðumaður Blindrabókasafns Íslands
  • Forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands
  • Forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands
  • Forstöðumaður Listasafns Íslands
  • Forstöðumaður Námsgagnastofnunar
  • Forstöðumaður Námsmatsstofnunar
  • Forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Íslands
  • Forstöðumaður Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra
  • Forstöðumaður Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum
  • Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar
  • Framkvæmdastjóri Lánasjóðs íslenskra námsmanna
  • Landsbókavörður
  • Listdansstjóri Íslenska dansflokksins
  • Rektor Háskóla Íslands
  • Rektor Háskólans á Akureyri
  • Rektor Hólaskóla – Háskólans á Hólum
  • Rektor Landbúnaðarháskóla Íslands
  • Safnastjóri Náttúruminjasafns Íslands
  • Skólameistari Borgarholtsskóla
  • Skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla
  • Skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti
  • Skólameistari Fjölbrautaskólans í Garðabæ
  • Skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
  • Skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga
  • Skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands
  • Skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja
  • Skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands
  • Skólameistari Flensborgarskóla
  • Skólameistari Framhaldsskólans á Húsavík
  • Skólameistari Framhaldsskólans á Laugum
  • Skólameistari Framhaldsskólans í Mosfellsbæ
  • Skólameistari Framhaldsskólans í A-Skaftafellssýslu
  • Skólameistari Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum
  • Skólameistari Iðnskólans í Hafnarfirði
  • Skólameistari Kvennaskólans í Reykjavík
  • Skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni
  • Skólameistari Menntaskólans á Akureyri
  • Skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum
  • Skólameistari Menntaskólans á Ísafirði
  • Skólameistari Menntaskólans á Tröllaskaga
  • Skólameistari Menntaskólans í Kópavogi
  • Skólameistari Menntaskólans í Reykjavík
  • Skólameistari Menntaskólans við Hamrahlíð
  • Skólameistari Menntaskólans við Sund
  • Skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands
  • Skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri
  • Þjóðleikhússtjóri
  • Þjóðskjalavörður

Umhverfis- og auðlindaráðuneyti

  • Forstjóri Íslenskra orkurannsókna
  • Forstjóri Landmælinga Íslands
  • Forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands
  • Forstjóri Mannvirkjastofnunar
  • Forstjóri Skipulagsstofnunar
  • Forstjóri Umhverfisstofnunar
  • Forstjóri Veðurstofu Íslands
  • Forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn
  • Forstöðumaður Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar
  • Forstöðumaður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála
  • Framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs
  • Framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs
  • Landgræðslustjóri
  • Skógræktarstjóri

Velferðarráðuneyti

  • Forstjóri Barnaverndarstofu
  • Forstjóri Geislavarna ríkisins
  • Forstjóri Landspítalans
  • Forstjóri Lyfjastofnunar
  • Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands
  • Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
  • Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
  • Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða
  • Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands
  • Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga
  • Forstjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Blönduósi
  • Forstjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Fjallabyggð
  • Forstjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Patreksfirði
  • Forstjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki
  • Forstjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Sólvangi
  • Forstjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Vestmannaeyjum
  • Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
  • Forstjóri Íbúðalánasjóðs
  • Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri
  • Forstjóri Sjúkratryggingastofnunar
  • Forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins
  • Forstjóri Vinnueftirlits ríkisins
  • Forstjóri Vinnumálastofnunar
  • Forstjóri þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga
  • Forstöðumaður Fjölmenningarseturs
  • Forstöðumaður Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins
  • Framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar Dalvík
  • Framkvæmdastjóri Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands
  • Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu
  • Landlæknir
  • Umboðsmaður skuldara

Utanríkisráðuneyti

  • Framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytið, 22. janúar 2014.

 F.h.r.

Guðmundur Árnason             /            Gunnar Björnsson  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum