Hoppa yfir valmynd
3. febrúar 2014 Dómsmálaráðuneytið

Vel mætt á fund á Suðurlandi

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra kynnti í dag fyrirhugaðar breytingar á skipan umdæma sýslumanna og lögreglustjóra á fundi á Hvolsvelli fyrir fulltrúum sveitarfélaga á Suðurlandi. Vel var mætt á fundinn og fulltrúar hinna ýmsu sveitarstjórna á Suðurlandi tóku þátt í umræðum. Með ráðherra á fundinum voru formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, formaður Sýslumannafélagsins, varaformaður Lögreglustjórafélagsins og þeir embættismenn ráðuneytisins sem að málinu koma.

Innanríkisráðherra hélt fund á Hvolsvelli í dag með sveitarstjórnarmönnum og kynnti frumvörp um breytingar á umdæmum sýslumanna og lögreglu.
Innanríkisráðherra hélt fund á Hvolsvelli í dag með sveitarstjórnarmönnum og kynnti frumvörp um breytingar á umdæmum sýslumanna og lögreglu.

Innanríkisráðherra mælti á Alþingi á dögunum fyrir tveimur lagafrumvörpum sem gera annars vegar ráð fyrir fækkun og stækkun á umdæmum sýslumanna og hins vegar lögreglustjóra. Tilgangurinn með stærri rekstrareiningum sýslumannsembætta er að auka og efla þjónustu ríkisins í héraði og skapa aukin tækifæri til að færa ný verkefni til sýslumanna. Á sama hátt er tilgangurinn með breytingum á umdæmum lögreglustjóra að auka samhæfingu og samstarf innan lögreglunnar um land allt, standa vörð um grunnþjónustu lögreglunnar, efla stjórnun innan lögreglu og gera lögreglustjórum kleift að sinna alfarið lögreglustjórn.

Fundurinn á Hvolsvelli var sá fyrsti í röð funda innanríkisráðherra til að fá fram álit og ábendingar heimamanna vegna þessara breytinga.

Rætt var um breytingar á umdæmum sýslumanna og lögreglu á fundi á Hvolsvelli í dag.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum