Hoppa yfir valmynd
10. febrúar 2014 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 12/2014, úrskurður 10. febrúar 2014

Mál nr. 12/2014
Kenninafn: Jósefsdóttir

Hinn 10. febrúar 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 12/2014.

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 31. janúar 2014, óskaði umsækjandi úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni þess efnis að taka upp kenningu til föður síns, Józefs. Óskar hún að rita kenninafnið Jósefsdóttir.

Ekkert í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

Úrskurðarorð:

Fallist er á ritháttinn Jósefsdóttir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum