Hoppa yfir valmynd
15. apríl 2014 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss

Með vísan til 65. gr. B laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og með vísan til reglugerðar nr. 353/2014 er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir innflutning á kjöti úr dýrum af nautgripakyni og osti og ystingi, fyrir tímabilið 14. apríl til 30. júní 2014:

Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
Tollskrárnr: kg % kr./kg.
ex0210.xxxx Nautgripkjöt - Vöruliður 0210: 14.04.14 - 30.06.14 10.000
Kjöt af dýrum af nautgripakyni:
0210.2001  -- Beinlaust 0 0
0210.2009  -- Annars 0 0
0406.xxxx Ostur og ystingur: 14.04.14 - 30.06.14 15.000 0 0

Úthlutun er ekki framseljanleg. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði 10. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt reglugerð nr. 448/2012, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vörunnar. Tilboð skulu ráða úthlutun.

Skriflegar umsóknir skulu berast  til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, að Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, bréflega eða á [email protected], fyrir kl. 15:00 föstudaginn 2. maí 2014.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. apríl 2014.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum