Hoppa yfir valmynd
6. maí 2014 Matvælaráðuneytið

Lurgur ehf. kærir ákvörðun Fiskistofu, dags. 13. desember 2013, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Konna EA-21, (7704).

Stjórnsýslukæra

Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru Júlíusar Magnússonar f.h. Lurgs ehf., Hamarstíg 26, 600 Akureyri, dags. 20. desember 2013, sem barst ráðuneytinu með tölvubréfi sama dag, þar sem kærð er til ráðuneytisins ákvörðun Fiskistofu, dags. 13. desember 2013, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Konna EA-21, skipaskárnúmer 7704.

Kæruheimild er í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

 

Kröfur kæranda

Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi ákvörðun Fiskistofu, dags. 13. desember 2013, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Konna EA-21 (7704) og að lagt verði fyrir Fiskistofu að úthluta byggðakvóta til bátsins í samræmi við kröfur og málsástæður í stjórnsýslukærunni.

 

Málsatvik


Málsatvik eru þau að með auglýsingu, dags. 15. nóvember 2013, sem birt var í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu 16. sama mánaðar, auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 í nokkrum byggðarlögum, m.a. á Dalvík í Dalvíkurbyggð en auglýsingin var byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, sbr. og 2. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014. Einnig var framangreind auglýsing birt á vefsíðu Fiskistofu og tölvupóstur með auglýsingunni sendur til viðkomandi sveitarfélaga þar sem þau voru beðin um að setja frétt um auglýsinguna inn á sínar heimasíður. Umsóknarfrestur var til og með 2. desember 2013. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hafði þá úthlutað 414 þorskígildistonnum af byggðakvóta til Dalvíkurbyggðar samkvæmt umsókn sveitarfélagsins á grundvelli reglugerðar nr. 664/2013, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2013/2014, sem skiptust á byggðarlögin Dalvík, 99 þorskígildistonn, Hauganes, 15 þorskígildistonn og Árskógssand, 300 þorskígildistonn. Úthlutunin var tilkynnt Dalvíkurbyggð með bréfi ráðuneytisins, dags. 16. október 2013.


Kærandi sótti um byggðakvóta fyrir bátinn Konna EA-21 (7704) með umsókn til Fiskistofu, dags. 18. nóvember 2013.


Hinn 13. desember 2013 tilkynnti Fiskistofa útgerðum í Dalvíkurbyggð ákvarðanir sínar um úthlutun byggðakvóta til báta í byggðarlögum sveitarfélagsins. Kæranda var tilkynnt að hafnað væri umsókn félagsins um úthlutun byggðakvóta til bátsins Konna EA-21 (7704). Ákvörðun Fiskistofu var byggð á því að samkvæmt staflið c 1. gr. reglugerðar nr. 665/2013 væri skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til skips að það hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi þann 1. júlí 2013. Skráður eigandi og útgerðaraðili ofangreinds skips hjá Fiskistofu hafi samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra verið með lögheimili á Akureyri á þeim tíma, og því komi ekki til úthlutunar byggðakvóta til skipsins.


Þá kom fram í ákvörðun Fiskistofu að hún væri kæranleg til atvinnuvega- og nýsköpunaráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindri tilkynningu Fiskistofu.

Málsástæður í stjórnsýslukæru o.fl.

Með stjórnsýslukæru, dags. 20. desember 2013, sem barst ráðuneytinu með tölvubréfi sama dag, kærði Júlíus Magnússon f.h. Lurgs ehf. framangreinda ákvörðun Fiskistofu, dags. 13. desember 2013, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Konna EA-21 (7704), til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.


Í stjórnsýslukærunni kemur fram m.a. að hin kærða ákvörðun Fiskistofu hafi verið byggð á þeim forsendum að samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra hafi útgerðaraðili bátsins Konna EA-21 (7704) verið með lögheimili að Hamarstíg 26, á Akureyri þann 1. júlí 2013. Samkvæmt staflið c 1. gr. reglugerðar nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014, verði skip að hafa verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi þann 1. júlí 2013. Þar sem fyrirsvarsmaður kæranda hafi gert út bátinn Konna EA-21 (7704) í tvö ár frá Dalvík og sé eigandi að Lurg ehf. og sé með lögheimili á Dalvík hafi hann talið að uppfyllt væru skilyrði framangreinds ákvæðis. Þá segir í stjórnsýslukærunni að á yfirliti sem fylgdi hinni kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 13. desember 2013, hafi komið fram rangar upplýsingar sem óskað sé eftir að verði leiðréttar varðandi landaðan afla á Dalvík en kærandi telji að báturinn Konni EA-21 (7704) hafi landað 4.461 kg á Dalvík en ekki 1.736 kg eins og komi þar fram.


Með bréfi, dags. 20. desember 2013, óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu um málið, staðfestu afriti af hinni kærðu ákvörðun, auk annarra gagna sem Fiskistofa kynni að hafa um málið.


Í bréfi Fiskistofu, dags. 15. janúar 2014, sem barst ráðuneytinu 17. sama mánaðar, segir m.a. að samkvæmt gögnum málsins sé enginn ágreiningur um að einkahlutafélagið Lurgur ehf. sé með lögheimili á Akureyri. Fyrirsvarsmaður kæranda og Lurgur ehf. séu ekki sami aðilinn. Fyrirsvarsmaður kæranda sé með lögheimili á Dalvík en hann sé ekki eigandi bátsins Konna EA-21 (7704) heldur Lurgur ehf. Ekki hafi því verið uppfyllt skilyrði fyrir úthlutun af byggðakvóta Dalvíkur í Dalvíkurbyggð til bátsins Konna EA-21 (7704) eins og komi fram í hinni kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 13. desember 2013.


Eftirtalin gögn fylgdu umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins í ljósritum: staðfest afrit af hinni kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 13. desember 2013, umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta, dags. 18. nóvember 2013 o.fl.


Með bréfi, dags. 20. janúar 2014, sendi ráðuneytið kæranda, Lurgi ehf., ljósrit af umsögn Fiskistofu, dags. 15. janúar 2014, og veitti félaginu kost á að gera athugasemdir við umsögnina. Frestur til þess var veittur til og með 5. febrúar 2014.


Engar athugasemdir bárust ráðuneytinu frá kæranda vegna framangreinds bréfs.

 

Rökstuðningur

Um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 gildir ákvæði 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Í 5. mgr. greinarinnar er ráðherra falið að setja með reglugerð almenn skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda til fiskiskipa innan einstakra byggðarlaga. Skulu þau skilyrði m.a. varða skráningarstað, skráningartíma, eignarhald, skiptingu milli fiskiskipa, lágmarksverð, tryggingar fyrir greiðslum og framkvæmd úthlutunar.


Á grundvelli framangreinds ákvæðis hefur ráðherra sett reglugerð nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014, með síðari breytingum. Í 1. gr. reglugerðarinnar eru talin upp almenn skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta en þau eru: a) að skip hafi haft leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, b) að skip hafi verið skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2013 og c) að skip hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2013. Miðað skal við lögheimili einstaklinga samkvæmt þjóðskrá og heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.


Einnig eru í 4. gr. reglugerðarinnar viðmiðanir um úthlutun aflaheimilda til einstakra fiskiskipa en samkvæmt ákvæðinu er gert ráð fyrir að úthlutun aflaheimilda skuli fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla almenn skilyrði reglugerðarinnar og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið hefur staðfest, eftir því sem við á og skuli úthlutað hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2012 til 31. ágúst 2013. Komi minna en 100 þorskígildiskíló í hlut fiskiskips samkvæmt framangreindum reglum fellur niður úthlutun til þess og skiptist hlutur þess milli annarra fiskiskipa frá sama byggðarlagi sem uppfylla skilyrði fyrir úthlutun í samræmi við skiptingu samkvæmt úthlutunarreglum.


Þá koma fram í reglugerðinni ákvæði um skyldu fiskiskipa til að landa afla til vinnslu í byggðarlagi, sbr. 6. gr. o.fl.


Samkvæmt 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 getur ráðherra heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök viðbótarskilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum, enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga. Sambærilegt ákvæði er í 2. gr. reglugerðar nr. 665/2013.


Sett hafa verið sérstök viðbótarskilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í Dalvíkurbyggð fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 samkvæmt framangreindu ákvæði með auglýsingu (II) nr. 1006/2013, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta, sem ekki hafa áhrif á niðurstöðu þessa máls.


Um skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa í Dalvíkurbyggð fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 fer því eftir 10. gr. laga nr. 116/2006, ákvæðum reglugerðar nr. 665/2013 og auglýsingu nr. 1006/2013.


Lurgur ehf., sem er einkahlutafélag og eigandi bátsins Konna EA-21 (7704), var með heimilisfang á Akureyri þann 1. júlí 2013 samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra og voru því ekki uppfyllt skilyrði stafliðar c 1. gr. reglugerðar nr. 665/2013 um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Konna EA-21 (7704) en þegar af þeirri ástæðu eru ekki skilyrði fyrir að fallast á kröfur kæranda í máli þessu. Einnig skal áréttað að það hefur ekki áhrif á úrlausn þessa máls hvernig eignaraðild var að einkahlutafélaginu Lurgi ehf. á framangreindu tímamarki en félagið sem er lögaðili er eigandi bátsins.


Þá er það mat ráðuneytisins að aðrar málsástæður í stjórnsýslukæru geti ekki haft áhrif á niðurstöðu þessa máls.


Með vísan til framanritaðs er það niðurstaða ráðuneytisins, að ekki séu skilyrði fyrir að úthluta af byggðakvóta Dalvíkur í Dalvíkurbyggð fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Konna EA-21 (7704) en samkvæmt því ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 13. desember 2013, um að hafna umsókn kæranda, Lurgs ehf., um úthlutun byggðakvóta til bátsins Konna EA-21 (7704).


Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær er að rekja til mikilla anna í ráðuneytinu.

 

Úrskurður

Ráðuneytið staðfestir ákvörðun Fiskistofu, dags. 13. desember 2013, um að hafna umsókn kæranda, Lurgs ehf., um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Konna EA-21, skipaskrárnúmer 7704.


Fyrir hönd sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

Jóhann Guðmundsson

Sigríður Norðmann


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum