Hoppa yfir valmynd
9. maí 2014 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss.

Með vísan til 65. gr. B laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og með vísan til reglugerðar nr. 419/2014 er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir innflutning á kjöti úr dýrum af nautgripakyni og osti og ystingi, fyrir tímabilið 1. júlí til 30. júní 2015:

 


Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
Tollskrárnr:

kg % kr./kg.
ex0210.xxxx Nautgripkjöt - Vöruliður 0210: 01.07.14 - 30.06.15 10.000


Kjöt af dýrum af nautgripakyni:



0210.2001  -- Beinlaust

0 0
0210.2009  -- Annars

0 0
0406.xxxx Ostur og ystingur: 01.07.14 - 30.06.15 15.000 0 0

 

Úthlutun er ekki framseljanleg. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði 10. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt reglugerð nr. 448/2012, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vörunnar. Tilboð skulu ráða úthlutun.

 

Skriflegar umsóknir skulu berast  til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, að Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, bréflega eða á [email protected], fyrir kl. 15:00 föstudaginn 16. maí 2014.


Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 9. maí 2014.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum