Hoppa yfir valmynd
9. maí 2014 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á nauta-, svína-, kinda-, geita- og alifuglakjöti.

Með vísan til 65. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og með vísan til reglugerðar nr. 416/2014 er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir innflutning á nauta-, svína- kinda-, geita- og alifuglakjöti, fyrir tímabilið 1. júlí 2014 til 30. júní 2015:

 


Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur



kg % kr./kg.
Tollskrárnr: Nautgripkjöt - Vöruliðir 0202 og 0210:
95.000
 
0202.3xxx Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst 01.07.14 - 30.06.15
0 895
  Kjöt af dýrum af nautgripakyni, saltað,


 
  þurrkað eða reykt:


 
0210.2001 Beinlaust 01.07.14 - 30.06.15
0 545
   


 
Tollskrárnr: Svínakjöt - vöruliðir 0203 og 0210:
64.000
 

Svínakjöt, fryst:



0203.2100 Skrokkar og hálfir skrokkar 01.07.14 - 30.06.15
0 235

Læri, bógur og sneiðar  úr því, með beini



0203.2201 Læri og lærisneiðar 01.07.14 - 30.06.15
0 471
0203.2209 Bógar og bógbitar 01.07.14 - 30.06.15
0 471

Með beini:



0203.29xx Svínakjöt, fryst 01.07.14 - 30.06.15
0 725

Af svínum fryst,



0206.4100 Lifur 01.07.14 - 30.06.15
0 78
0206.4900 Annað 01.07.14 - 30.06.15
0 193
0209.1000 Af svínum - svínafita 01.07.14 - 30.06.15
0 67

Svínakjöt, saltað, þurrkað eða reykt:



0210.1100 Læri, bógur og sneiðar  úr því, með beini 01.07.14 - 30.06.15
0 383
0210.1200 Slög og sneiðar af þeim, beinlaust 01.07.14 - 30.06.15
0 519
0210.1901 Reykt - beinlaust 01.07.14 - 30.06.15
0 589
0210.1902 Annað 01.07.14 - 30.06.15
0 589
0210.1909 Annars - beinlaust 01.07.14 - 30.06.15
0 589






Tollskrárnr: Kinda eða geitakjöt - vöruliðir 0204 og 0210
345.000

0204.3000 Lambaskrokkar, heilir eða hálfir - fryst 01.07.14 - 30.06.15
0 194
0204.4xxx Kindakjöt , fryst 01.07.14 - 30.06.15
0 667
0204.5000 Geitakjöt 01.07.14 - 30.06.15
0 194

Annað fryst: 01.07.14 - 30.06.15


0206.9100 Svið (sviðahausar) 01.07.14 - 30.06.15
0 107
0206.9009 Annars 01.07.14 - 30.06.15
0 306

Kindakjöt, saltað, þurrkað eða reykt.



0210.9921 Beinlaust 01.07.14 - 30.06.15
0 434
0210.9929 Annars 01.07.14 - 30.06.15
0 434
0210.9931 Beinlaust 01.07.14 - 30.06.15
0 639
0210.9939 Annars 01.07.14 - 30.06.15
0 639







Kjöt af alifuglum - vöruliður 0207:
59.000

Tollskrárnr: Af hænsnum af tegundinni Gallus domisticus:



0207.1xxx Af hænsnum, fryst 01.07.14 - 30.06.15
0 267

Af kalkúnum:



0207.2xxx Af kalkúnum, fryst 01.07.14 - 30.06.15
0 366

Af öndum, gæsum eða perluhænsnum:



0207.4xxx Af öndum, fryst 01.07.14 - 30.06.15
0 366
0207.5xxx Af gæsum, fryst 01.07.14 - 30.06.15
0 366
0207.6xxx Af perluhænsnum, fryst 01.07.14 - 30.06.15
0 366

 

Úthlutun er ekki framseljanleg. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði 10. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt reglugerð nr. 448/2012, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vörunnar. Tilboð skulu ráða úthlutun.

 

Skriflegar umsóknir skulu berast  til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, að Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, bréflega eða á [email protected], fyrir kl. 15:00 föstudaginn 16. maí 2014.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum