Hoppa yfir valmynd
19. maí 2014 Dómsmálaráðuneytið

Tæplega þrjú þúsund manns í framboði

Alls eru 184 listar í framboði til 74 sveitarstjórna í kosningunum 31. maí næstkomandi. Á listunum eiga sæti 2.916 einstaklingar, 1536 karlar og 1380 konur. Karlar eru 53% frambjóðenda og konur 47%. Þessi hlutföll eru hin sömu og voru í síðustu sveitarstjórnarkosningum árið 2010.

Listakosningar verða í 53 sveitarfélögum en þar hafa verið lagðir fram fleiri en einn listi og mun því hlutfallskosning fara þar fram í þeim.

Í þremur sveitarfélögum kom aðeins fram einn listi og er því sjálfkjörið í þær sveitarstjórnir.

Óbundnar kosningar verða í 18 sveitarfélögum þar sem enginn listi kom fram. Í óbundnum kosningum eru allir kjósendur í sveitarfélaginu í kjöri, nema þeir sem löglega eru undanþegnir skyldu til að taka kjöri og hafa fyrir fram skorast undan því.

Samanburður við kosningarnar 2010

Í síðustu sveitarstjórnarkosningum voru 185 listar í framboði til 76 sveitarstjórna og á listunum áttu sæti 2.846 einstaklingar. Listakosningar fóru fram í 54 sveitarfélögum árið 2010 og óbundnar kosningar í 18. Í fjórum sveitarfélögum kom aðeins fram einn listi og var því sjálfkjörið í þær sveitarstjórnir.

Upplýsingar  um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninganna 31. maí er hafin. Innanlands er hægt að kjósa hjá öllum sýslumönnum á landinu, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra. Sjá nánari upplýsingar á vef sýslumanna.

Í Reykjavík fer atkvæðagreiðslan utan kjörfundar fram í Laugardalshöllinni og og þar verður opið alla daga frá klukk­an 10:00-22:00.

Atkvæðagreiðsla erlendis er á vegum utanríkisráðuneytisins og hefst 7. apríl. Upplýsingar þar um má nálgast á vef ráðuneytisins.

Sjá má ýmsar frekari upplýsingar á vefnum kosning.is.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum