Hoppa yfir valmynd
27. júní 2014 Innviðaráðuneytið

Sex hafnir skilgreindar sem neyðarhafnir

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hefur undirritað reglugerð um útnefningu skipaafdrepa á Íslandi. Þannig eru skilgreindar hafnir, hluti hafna, örugg skipalægi eða akkerislægi sem geta tekið á móti nauðstöddum skipum. Tilgangur neyðarhafna er að fyrirbyggja slys og mengun á sjó og draga úr áhrifum þeirra á umhverfi sjávar og stranda, efnahagslífið og heilbrigði íbúa.

Þær hafnir sem nú eru skilgreindar sem neyðarhafnir eru Helguvíkurhöfn, Hafnarfjarðarhöfn, Ísafjarðarhöfn, Akureyri/Krossaneshöfn, Reyðarfjarðarhöfn og Vestmannaeyjahöfn.

Þá hafa eftirfarandi staðir verið útnefndir sem skipaafdrep utan hafnar; Hvalfjörður, Dýrafjörður, Ísafjarðardjúp, Eyjafjörður (vestan við Hrísey), Reyðarfjörður og Heimaey (norðan við Eiðið).

Aðgerðaráætlun um það hvernig veita mætti nauðstöddum skipum afdrep í höfnum eða neyðarafdrep á skýldum hafsvæðum var tekin til endurskoðunar í kjölfar komu skipsins Fernanda sl. vetur. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar og Hermann Guðjónsson, forstjóri Samgöngustofu, undirrituðu nýja aðgerðaráætlun í maí sl. og var hún unnin í samráði við þær hafnir sem nú hafa verið útnefndar sem neyðarhafnir.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum