Hoppa yfir valmynd
2. júlí 2014 Matvælaráðuneytið

Útgerðarfélagið Hjallur ehf. kærir ákvörðun Fiskistofu, dags. 18. dsember 2013, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Binnu ÍS-303, (6429).

Stjórnsýslukæra

Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru frá Ólafi Jóni Gústafssyni f.h. Útgerðarfélagsins Hjalls ehf., Hjallavegi 13, 430 Suðureyri, dags. 29. desember 2013, sem barst atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu 30. sama mánaðar, þar sem kærð er til ráðuneytisins ákvörðun Fiskistofu, dags. 18. dsember 2013, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Binnu ÍS-303, skipaskrárnúmer 6429.


Kæruheimild er í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

 

Kröfur kæranda

Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi hin kærða ákvörðun Fiskistofu, dags. 18. desember 2013, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta til bátsins Binnu ÍS-303 (6429) og að lagt verði fyrir Fiskistofu að úthluta byggðakvóta til bátsins í samræmi við kröfur og málsástæður í stjórnsýslukærunni.

 

Málsatvik

Málsatvik eru þau að með auglýsingu, dags. 22. nóvember 2013, sem birt var í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu 23. sama mánaðar, auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 í nokkrum byggðarlögum, m.a. á Suðureyri í Ísafjarðarbæ, en auglýsingin var byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sbr. og 2. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014. Einnig var framangreind auglýsing birt á vefsíðu Fiskistofu og tölvupóstur með auglýsingunni sendur til viðkomandi sveitarfélaga þar sem þau voru beðin um að setja frétt um auglýsinguna inn á sínar heimasíður. Umsóknarfrestur var til og með 9. desember 2013. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hafði þá úthlutað 424 þorskígildistonnum af byggðakvóta til Ísafjarðarbæjar samkvæmt umsókn sveitarfélagsins á grundvelli reglugerðar nr. 664/2013, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2013/2014, sem skiptust á byggðarlögin Flateyri, 300 þorskígildistonn og Suðureyri, 124 þorskígildistonn. Úthlutunin var tilkynnt Ísafjarðarbæ með bréfi ráðuneytisins, dags. 16. október 2013.


Kærandi sótti um byggðakvóta fyrir bátana Hrönn ÍS-303 (2049) og Binnu ÍS-303 (6429), með umsóknum til Fiskistofu, dags. 4. og 9. desember 2013.


Hinn 18. desember 2013 tilkynnti Fiskistofa eigendum og útgerðaraðilum báta í Ísafjarðarbæ, m.a. á Suðureyri ákvarðanir sínar um úthlutun byggðakvóta til báta í byggðarlögum sveitarfélagsins. Kæranda var tilkynnt að hafnað væri umsókn félagsins um úthlutun byggðakvóta til bátsins Hrannar ÍS-303 (2049) með vísan til þess að samkvæmt staflið b 1. gr. reglugerðar nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014, sbr. og auglýsingar nr. 1031/2013, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta væri skilyrði fyrir úthlutun til skips að það hafi verið skráð í viðkomandi byggðarlagi þann 7. nóvember 2013. Þar sem skipið Hrönn ÍS-303 (2049) hafi verið skráð á Súðavík á þeim tíma komi ekki til úthlutunar byggðakvóta til skipsins. Einnig var kæranda tilkynnt að hafnað væri umsókn félagsins um úthlutun byggðakvóta til bátsins Binnu ÍS-303 (6429) með vísan til þess að samkvæmt staflið c 1. gr. reglugerðar nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014, sbr. og auglýsingar (III) nr. 1031/2013 væri það skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til skips að það hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi þann 1. júlí 2013. Skráður eigandi og útgerðaraðili skipsins Binnu ÍS-303 (6429) hjá Fiskistofu hafi samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra, verið með lögheimili á Patreksfirði á þeim tíma, og því komi ekki til úthlutunar byggðakvóta til skipsins.


Þá kom fram í ákvörðunum Fiskistofu að þær væru kæranlegar til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindum tilkynningum um höfnun umsókna um úthlutun.

 

Málsrök í stjórnsýslukæru o.fl.

Með stjórnsýslukæru, dags. 29. desember 2013, sem barst ráðuneytinu 30. sama mánaðar, kærði kærandi, Útgerðarfélagið Hjallur ehf. til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins framangreinda ákvörðun Fiskistofu um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta til bátsins Binnu ÍS-303 (6429).


Í stjórnsýslukærunni segir m.a. að Útgerðarfélagið Hjallur ehf. hafi átt og gert út fiskiskipið Hrönn ÍS-303 (2049) á fiskveiðiárinu 2012/2013, en selt síðan skipið til Súðavíkur og hafi báturinn Binna ÍS-303 (6429) verið keyptur í staðinn. Óski kærandi eftir að fá úthlutaðan byggðakvóta vegna fiskveiðiársins 2013/2014 á skipið Binnu ÍS-303 (6429) vegna veiðireynslu sem aflað var á skipið Hrönn ÍS-303 (2049).


Með bréfi, dags. 3. janúar 2014, óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu um stjórnsýslukæruna, staðfestu afriti af hinni kærðu ákvörðun, auk annarra gagna sem Fiskistofa kynni að hafa um málið.


Í umsögn Fiskistofu, dags. 3. febrúar 2014, kemur fram m.a. að skilyrði b liðar 1. gr. reglugerðar nr. 665/2013 um úthlutun byggðakvóta til fiskveiðiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014, sbr. auglýsingar nr. 1031/2013, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta, hafi ekki verið uppfyllt varðandi Hrönn ÍS-303 (2049) þar sem skipið hafi verið skráð í Súðavík þann 7. nóvember 2013 en ekki á Suðureyri. Einnig kemur þar fram að skilyrði c-liðar 1. gr. reglugerðar nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskveiðiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014, sbr. auglýsingu nr. 1031/2013 um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta hafi ekki verið uppfyllt varðandi Binnu ÍS-303 (6429) þar sem skráður eigandi og útgerðaraðili skipsins þann 1. júlí 2013 hafi verið með lögheimili á Patreksfirði. Fiskistofa telji að staðfesta beri ákvörðun stofnunarinnar.


Eftirtalin gögn fylgdu umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins í ljósritum: 1) staðfest afrit af hinni kærðu ákvörðun, dags. 18. desember 2013, 2) yfirlit um úthlutun byggðakvóta á Suðureyri í Ísafjarðarbæ fiskveiðiárið 2013/2014, 3) umsóknir kæranda, dags. 4. og 9. desember 2013, 4) samningar um vinnslu afla vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2013/2014, 5) auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2013/2014, dags. 22. nóvember 2013 o.fl.


Með bréfi, dags. 10. febrúar 2014, sendi ráðuneytið ljósrit af umsögn Fiskistofu til kæranda og veitti honum kost á að gera athugasemdir við umsögnina, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Frestur til þess var veittur til og með 28. febrúar 2014.


Engar athugasemdir bárust ráðuneytinu frá kæranda, Útgerðarfélaginu Hjalli ehf. um framangreinda umsögn Fiskistofu.

 

Rökstuðningur

I. Í stjórnsýslukæru í máli þessu, dags. 29. desember 2013, er gerð grein fyrir eignarhaldi kæranda, Útgerðarfélagsins Hjalls ehf., á bátunum Hrönn ÍS-303 (2049) og Binnu ÍS-303 (6429) og einnig viðskiptum kæranda með bátana á tilteknu tímabili. Eins og stjórnsýslukæra í máli þessu er sett fram er af hálfu ráðuneytisins byggt á við úrlausn málsins að stjórnsýslukæran beinist eingöngu að ákvörðun Fiskistofu, dags. 18. desember 2013, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta til bátsins Binnu ÍS-303 (6429).


II. Um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 gildir ákvæði 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Í 5. mgr. greinarinnar er ráðherra falið að setja með reglugerð almenn skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda til fiskiskipa innan einstakra byggðarlaga. Skulu þau skilyrði m.a. varða skráningarstað, skráningartíma, eignarhald, skiptingu milli fiskiskipa, lágmarksverð, tryggingar fyrir greiðslum og framkvæmd úthlutunar.


Á grundvelli framangreinds ákvæðis hefur ráðherra sett reglugerð nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014. Í 1. gr. reglugerðarinnar eru talin upp almenn skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta en þau eru: a) að skip hafi haft leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, við lok umsóknarfrests, b) að skip hafi verið skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2013 og c) að skip hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2013. Miðað skal við lögheimili einstaklinga samkvæmt þjóðskrá og heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.


Einnig koma fram í 4. gr. reglugerðarinnar viðmiðanir um úthlutun aflaheimilda til einstakra fiskiskipa en samkvæmt ákvæðinu er gert ráð fyrir að skipting þess aflamarks sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skuli að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla almenn skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar, sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið hefur staðfest, eftir því sem við á, og skuli úthlutað hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2012 til 31. ágúst 2013. Komi minna en 100 þorskígildiskíló í hlut fiskiskips samkvæmt framangreindum reglum fellur úthlutun til þess niður og skiptist hlutur þess milli annarra fiskiskipa frá sama byggðarlagi sem uppfylla skilyrði fyrir úthlutun í samræmi við skiptingu samkvæmt úthlutunarreglum.


Þá koma fram í reglugerðinni ákvæði um skyldu fiskiskipa til að landa afla til vinnslu í byggðarlagi, sbr. 6. gr. o.fl.


Samkvæmt 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, getur ráðherra heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum, enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga. Sambærilegt ákvæði er í 2. gr. reglugerðar nr. 665/2013.


Sett hafa verið sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í Ísafjarðarbæ, m.a. á Suðureyri fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 samkvæmt framangreindu ákvæði með auglýsingu (III) nr. 1031/2013, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta, en þar segir m.a.: "Ákvæði reglugerðar nr. 665 frá 10. júlí 2013 gilda um úthlutun byggðakvóta Flateyrar og Suðureyrar með eftirfarandi viðauka/breytingum: " ...2) Ákvæði b-liðar 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Eru skráð í viðkomandi byggðarlagi 7. nóvember 2013."


Um skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa í Ísafjarðarbæ, m.a. á Suðureyri fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 fer því eftir 10. gr. laga nr. 116/2006, ákvæðum reglugerðar nr. 665/2013 og auglýsingu (III) nr. 1031/2013.


Í staflið c í 1. gr. reglugerðar nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014, er skilyrði fyrir úthlutun til skips að það hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í Ísafjarðarbæ 1. júlí 2013.


Skráður eigandi og útgerðaraðili bátsins Binnu ÍS-303 (6429) var samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra með heimilisfang á Patreksfirði í Vesturbyggð á framangreindu tímamarki.


Í stjórnsýslukærunni er byggt á því að kærandi hafi endurnýjað fiskiskip sitt á því tímabili sem kemur fram í 1. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 665/2013, þ.e. á tímabilinu 1. september 2012 til 31. ágúst 2013 en kærandi seldi bátinn Hrönn ÍS-303 (2049) og keypti í staðinn bátinn Binnu ÍS-303 (6429).


Í 3. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 665/2013 kemur fram að réttindi til úthlutunar fylgi skipi, nema ef eigandi eða leigutaki fiskiskips, sbr. 1. gr. reglugerðarinnar hefur endurnýjað fiskiskip sitt á því viðmiðunartímabili sem fram kemur í 1. mgr. 4. gr. og flutt aflahlutdeildir af eldra skipinu yfir á endurnýjaða skipið getur hann í umsókn sinni óskað eftir að við úthlutun aflamarks skv. 1. mgr. sé tekið tillit til landaðs afla eldra skips umsækjanda í sömu hlutföllum og nemur þeim aflahlutdeildum sem hafa verið fluttar milli skipanna.


Ekki komu fram upplýsingar í umsókn kæranda, dags. 9. desember 2013, um úthlutun byggðakvóta til bátsins Binnu ÍS-303 (6429), um að um væri að ræða endurnýjun eldra skips og að óskað væri eftir að tekið yrði tillit til landaðs afla eldra skips kæranda eins og áskilið er í 1. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014.


Með vísan til framanritaðs er það niðurstaða ráðuneytisins að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 18. desember 2013, um að hafna umsókn kæranda, Útgerðarfélagsins Hjalls ehf., um úthlutun af byggðakvóta Suðureyrar í Ísafjarðarbæ fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Binnu ÍS-303 (6429).


Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær er að rekja til mikilla anna í ráðuneytinu.

 

Úrskurður

Ráðuneytið staðfestir ákvörðun Fiskistofu, dags. 18. desember 2013, um að hafna umsókn kæranda, Útgerðarfélagsins Hjalls ehf., um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Binnu ÍS-303, skipaskrárnúmer 6429.


Fyrir hönd sjávaútvegs- og landbúnaðarráðherra

Jóhann Guðmundsson

Sigríður Norðmann


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum