Hoppa yfir valmynd
30. júlí 2014 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 53/2014, úrskurður 30. júlí 2014

Mál nr. 53/2014

Millinafn: Clinton

Hinn 30. júlí 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 53/2014 en erindið barst nefndinni 7. júlí:

Samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga um mannanöfn skal millinafn dregið af íslenskum orðstofnum en má þó ekki hafa nefnifallsendingu. Millinafnið Clinton telst ekki dregið af íslenskum orðstofnum og fullnægir því ekki skilyrðum laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Clinton er hafnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum