Hoppa yfir valmynd
26. september 2014 Matvælaráðuneytið

Fjárfestingarsamningur um byggingu sólarkísilverksmiðju undirritaður

Ragnheiður Elín og Terry Jester CEO Silicor Materials
Ragnheiður Elín og Terry Jester CEO Silicor Materials

Í dag undirritaði Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, fjárfestingarsamning við Silicor Materials hf. um byggingu verksmiðju á Grundartanga til að framleiða sólarkísil. Við sama tilefni undirritaði ráðherra jafnframt yfirlýsingu um sókn á sviði nýsköpunar á sviði efnistækni, m.a. ál- og kísilvinnslu. 

Áætluð ársframleiðsla er um 19.000 tonn. Beitt verður nýrri aðferð sem byggir á því að bræða kísilmál í fljótandi áli. Reiknað er með að framleiðsla geti hafist á seinni árshelmingi 2016 og að unnt verði að ná fullum afköstum árið 2017. Orkuþörf er áætluð um 60 MW. Engin brennisteins- eða flúorsmengun fylgir framleiðslunni og er útstreymi koltvísýrings áætlað undir 1.000 tonn á ári.

Í fjárfestingarsamningnum felast ýmsar tímabundnar ívilnanir fyrir þetta tiltekna verkefni og er þar fyrst og fremst um lægri tekjuskattsprósentu, tryggingargjald og fasteignaskatt að ræða. Fjárfestingarsamningurinn er undirritaður með fyrirvara um samþykki Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) og heimildar frá Alþingi.

Til þess að efla nýsköpun og þróunarstarf í ál- og kísilvinnslu verður sett á laggirnar 3ja ára áætlun hjá Tækniþróunarsjóði um fjármögnun nýsköpunar- og þróunarverkefna á sviði efnistækni. Gert er ráð fyrir a.m.k. 50 m.kr. framlagi til verkefna árlega gegn mótframlagi fyrirtækja. Þá mun Nýsköpunarmiðstöð Íslands fjármagna stöðugildi sérfræðings mun m.a. vinna að stofnun þróunarseturs. Markmiðið er að auka þekkingu og stuðla að aukinni verðmætasköpun á sviði efnistækni á Íslandi.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum