Hoppa yfir valmynd
26. september 2014 Forsætisráðuneytið

Páll Þórhallsson tekur við formennsku í stjórnarskrárnefnd

Forsætisráðherra hefur skipað Pál Þórhallsson, skrifstofustjóra í forsætisráðuneyti, nýjan formann stjórnarskrárnefndar. Páll tekur við formennsku af Sigurði Líndal, prófessor emeritus, sem nýlega fékk lausn frá störfum að eigin ósk.

Um endurskoðun stjórnarskrárinnar segir í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar að unnið verði áfram að henni með breiða samstöðu og fagmennsku að leiðarljósi. Stjórnarskrárnefnd var skipuð af forsætisráðherra 6. nóvember 2013, í samræmi við samkomulag allra þingflokka. Hlutverk nefndarinnar er að leggja til breytingar á stjórnarskránni, með hliðsjón af þeirri vinnu sem farið hefur fram á undanförnum árum og annarri þróun í stjórnarskrármálum.

Páll Þórhallsson hefur starfað í forsætisráðuneytinu frá árinu 2005 og þar áður hjá mannréttindadeild Evrópuráðsins. Samhliða störfum sínum í forsætisráðuneytinu hefur hann sinnt kennslu við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Páll lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1995 og  framhaldsnámi í stjórnskipunarrétti frá háskólanum í Strassborg 1998. Hann átti sæti í sérfræðingahópi Alþingis sem  árið 2012 var falið að undirbúa frumvarp til nýrra stjórnskipunarlaga á grundvelli tillagna stjórnlagaráðs og einnig í undirbúningsnefnd stjórnlagaþings og síðar stjórnlagaráðs 2010-2011. Loks var Páll starfsmaður stjórnarskrárnefndar þeirrar sem starfaði á árunum 2005-2007 undir forystu Jóns Kristjánssonar.

Skipan Páls kemur á þeim skilum í starfi nefndarinnar að gefin hefur verið út fyrsta áfangaskýrsla og athugasemdafresti vegna hennar lýkur 1. október. Fram undan er nánari úrvinnsla og undirbúningur næstu áfangaskýrslu. Stefnt skal að því að vinnu nefndarinnar ljúki tímanlega svo hægt sé að samþykkja frumvarp til breytinga á stjórnarskránni á yfirstandandi kjörtímabili en unnt er að áfangaskipta vinnunni eftir því sem henta þykir.

Frekari upplýsingar um stjórnarskrárnefnd er að finna á stjornarskra.is, þar á meðal fyrstu áfangaskýrslu og fundargerðir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum